Nýr pítsasjálfsali vekur lukku

Pítsasjálfsala er nú að finna í Bretlandi. Hann bakar ljúffengar …
Pítsasjálfsala er nú að finna í Bretlandi. Hann bakar ljúffengar steinbakaðar pítsur á einungis 3 mínútum. Mbl.is/ Jake McPherson SWNS

Veitingastaðir eru ótrúlega útsjónarsamir þegar kemur að því að hagræða hlutunum vegna heimsfaraldursins. Og hér erum við að sjá fyrsta pítsasjálfsalann sem finna má í Bretlandi.

Pizza Bella sem staðsettur er í Bristol, býður nú viðskiptavinum sínum upp á steinbakaðar pítsur í gegnum sjálfsala út á götu. Þú einfaldlega pantar uppáhalds pítsuna þína á snertiskjá og bíður í heilar þrjár mínútur þar til hún er klár – rjúkandi heit og ljúffeng. Og engin samskipti fara fram við starfsmenn sem þýðir minni áhætta fyrir starfsfólk og viðskiptavini. Það er frábært að sjá nýsköpun blómstra á tímum sem þessum.

Þú einfaldlega pantar uppáhalds pítsuna þína í gegnum snertiskjá.
Þú einfaldlega pantar uppáhalds pítsuna þína í gegnum snertiskjá. Mbl.is/ Jake McPherson SWNS
Það væri frábært að sjá sjálfsala sem þennan hér á …
Það væri frábært að sjá sjálfsala sem þennan hér á landi. Mbl.is/ Jake McPherson SWNS
Mbl.is/ Jake McPherson SWNS
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert