Eftirrétturinn sem mun toppa veisluna

Það er María Gomez á Paz.is sem galdrar hér fram eftirréttatartalettur sem fæstum hefði dottið í hug að búa til – hvað þá að þær væru svona ótrúlega bragðgóðar eins og þær reyndust vera. María segist nota blöndu af sykri og vatni á tartaletturnar. Blandan samanstendur af jöfnum hlutföllum af sykri og soðnu vatni en sykurinn þarf að leysast upp að fullu.

Lemon Tart-tartalettur

  • 1 pakki Luxus Humlum-tartalettur
  • 100 g nýkreistur sítrónusafi úr ferskum sítrónum (ekki nota úr belg)
  • 2 egg
  • 1 eggjarauða
  • 100 g sykur
  • börkur af einni sítrónu
  • 50 g smjör

Eggjahvítukrem (marens)

  • 2 eggjahvítur
  • 40 g sykur
  • 1/4 tsk. cream of tartar eða vínsteinslyftiduft (er það sama)
  • pínu salt

Lemon Tart-tartalettur

  1. Notið gler- eða plastskál til verksins (ekki úr stáli).
  2. Setjið í skál öll innihaldsefnin, nema smjörið, og hrærið saman með písk. Passið að raspa bara gula partinn af sítrónuberkinum, alls ekki hvíta lagið.
  3. Setjið skálina svo yfir vatnsbað (þ.e. setjið vatn í pott og skálina yfir án þess að botninn á henni snerti vatnið).
  4. Hitið vatnið yfir ögn hærra en meðalhita og hrærið í sítrónublöndunni allan tímann á meðan þar til hún þykknar í skálinni yfir pottinum á heitri hellunni.
  5. Ég svindlaði smá og byrjaði á að nota handþeytara til verksins í skálinni yfir pottinum. Þegar komin var mikil froða skipti ég yfir í písk og pískaði saman þar til blandan var orðin þykk eins og vanillubúðingur á vínarbrauði. Þetta er gert yfir vatnsbaðinu allann tímann og getur tekið allt að 10 mínútur en passið að píska allan tímann. Verið þolinmóð en oft þegar maður heldur að hún þykkni ekkert kemur það loks allt í einu.
  6. Takið svo blönduna þegar hún hefur þykknað og sigtið í aðra skál, setjið svo smjörið í og hrærið vel saman, varlega samt.
  7. Hitið ofninn á 180°C blástur og penslið tartaletturnar með sykurvatninu sem ég nefni efst.
  8. Hellið svo sítrónublöndunni jafnt í hverja tartalettu og setjið í ofninn í 10 mínútur.
  9. Gerið næst eggjahvítukremið en það er best að gera það rétt áður en á að bera þær fram.
  10. Þá eru eggjahvítur, cream of tartar og salt sett í hrærivél og þeytt þar til byrjar að þykkna ögn.
  11. Byrjið þá að setja sykurinn í smápörtum út í eins og 2 msk í einu og þeytið stöðugt á meðan þar til kremið er orðið alveg hvítt og stíft, ættuð að geta hvolft skálinni án þess að það haggist.
  12. Þegar tartaletturnar hafa kólnað er kreminu sprautað ofan á og brennt með brennara.
Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez



Súkkulaði- og karamellutartalettur

Súkkalaði-ganache
  • 1 pakki hefðbundnar Humlum-tartalettur
  • 170 g dökkt súkkulaði
  • 120 g rjómi
  • 25 g smjör
  • ½ tsk. fínt borðsalt
Karamellu-ganache
  • 1x150 g poki fjólubláar walkers-karamellur (ekki súkkulaðihúðaðar)
  • ½ dl rjómi
  • 1 tsk. gróft salt

Súkkulaði- og karamellutartalettur

  1. Byrjið á að pensla tartaletturnar með sykurvatninu hér að ofan.
  2. Setjið þær í 180°C heitan ofn í 8-10 mín. og hafið þær tómar.
  3. Brytjið súkkulaðið í bita og setjið smjör með í grunna víða skál.
  4. Hitið nú rjómann með salti í potti alveg upp að suðu og hellið yfir súkkulaðið í skálinni.
  5. Hrærið vel saman þar til silkimjúkt og glansandi.
  6. Bræðið næst karamellur og rjóma með saltinu í potti þar til silkimjúkt og glansandi.
  7. Hálffyllið svo hverja tartalettu með súkkulaði-ganache og leyfið henni að standa í smá stund.
  8. Setjið karamellu-ganache yfir og fyllið tartalettuna alveg upp að brún.
  9. Mér finnst best að setja þessar tartalettur í hálftíma í frysti og þá eru þær til, má líka gera fyrir fram og geyma í kæli yfir nótt.

Punktar

Tartaletturnar fást í Bónus, Hagkaup, Melabúðinni og víðar.

Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert