Ef það er eitthvert meðlæti sem er nauðsynlegt á hátíðarborðið þá er það rauðkál. Hér hefur Berglind Guðmunds á GRGS.is sultað það og við mælum heilshugar með því að þið prófið þetta meðlæti sem er hér tekið í nýjar hæðir.
Sjúklega gott sultað jólarauðkál
- 1 rauðkál (ca 1½ kg)
- 1 laukur
- 2 epli
- 75 g andafita eða smjör
- 1 tsk. negull, malaður
- 1 tsk. allrahandakrydd
- ½ tsk. pipar
- 1½ dl rauðvín
- ½ dl balsamedik
- 1 appelsína
- 2½ dl rifsberjasaft
- 1½ dl edik
- 1 tsk salt
- ½ dl sykur
Leiðbeiningar
- Saxið rauðkálið. Skerið lauk í þunnar sneiðar. Afhýðið eplin og skerið í þunna báta.
- Látið smjörið í pott og steikið rauðkál, lauk og epli þar til það er farið að mýkjast.
- Setjið kryddið saman við ásamt rauðvíni og balsamediki. Hrærið vel saman og látið malla í 15 mínútur.
- Fínrífið börkinn af appelsínunni og látið saman við ásamt safa úr appelsínunni.
- Látið þá edik, berjasaft, salt og sykur saman við. Látið malla í 1 klst.
- Setjið rauðkálið í krukku og þegar hættir að gufa upp af rauðkálinu setjið þá lokið á.
- Geymið í kæli í allt að mánuð.
Ljósmynd/Berglind Guðmundsdóttir