Blackbox opnar á Akureyri

Ljósmynd/Aðsend

Hinn vinsæli pístustaður Blackbox Pizzeria hefur opnað á Akureyri. Staðinn er að finna innan veggja Hamborgarafabrikkunnar á jarðhæð Hótels KEA. Það eru hjónin Jóhann Stefánsson og Katrín Ósk Ómarsdóttir sem standa að opnun Blackbox en fyrir reka þau Hamborgarafabrikkuna, Lemon og Múlaberg ásamt því að sjá um allan veitingarekstur á Hótel KEA.

„Frá því að við tókum við Hamborgarafabrikkunni höfum við fundið fyrir mikilli eftirspurn eftir Blackbox. Gleðipinnar, sem reka Fabrikkunna í Reykjavík, eru á meðal hluthafa í Blackbox og þannig kviknaði þessi snilldarhugmynd að skrá þessa tvo veitingastaði í sambúð,“ segir Jóhann. Hamborgarafabrikkunni er einfaldlega skipt í tvennt. Viðskiptavinir velja hvort þeir sitja á Blackbox eða á Fabrikkunni, og panta sér pítsu eða hamborgara, hvar sem þeir sitja. 

Blackbox hefur verið ein vinsælasta handverkspítsan á Íslandi undanfarin ár en hugmyndafræðin gengur út á að bjóða pítsu með áður óþekktum hráefnagæðum á áður óþekktum hraða.

Áður óþekkt hráefnagæði og blómkálsbotn

Stofnandi og yfirkokkur Blackbox er Karl Viggó Vigfússon, bakarameistari og meðlimur íslenska kokkalandsliðsins til margra ára. Viggó er þekktur fyrir að ganga lengra en flestir í leit sinni að hágæðahráefni. „Það er hugsun á bak við hvert einasta hráefni sem við notum á staðnum. Pítsusósan er handgerð á staðnum úr ítölskum plómutómötum, hráskinkan kemur í heilum lærum og er skorin á staðnum í ítalskri skurðarvél og mozzarellaosturinn er ferskur og handrifinn á pítsurnar. Súrdeigsbotninn er eftir ítalskri uppskrift og er bakaður í 400°C heitum ítölskum steinofni,“ segir Viggó. Ein af nýjungum Blackbox sem hefur slegið í gegn er blómkálsbotninn en hann inniheldur 40% blómkál og lítið af kolvetnum og hitaeiningum. „Nýi blómkálsbotninn er frábær viðbót við matseðilinn á Blackbox og er alveg ótrúlega bragðgóður,“ bætir Viggó við að lokum.

Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert