Kartöflumeðlæti með leynihráefni

Besta kartöflumeðlæti síðari ára.
Besta kartöflumeðlæti síðari ára. Mbl.is/Instagram_Laurafordnutrition

Bakaðar kartöflur í ofni geta verið allskonar – og þá meinum við misgóðar. Hér er aftur á móti uppskrift sem þykir sú besta og það með leynihráefni, því hungang spilar hér stórt hlutverk. Það er næringarfræðingurinn Laura Ford sem deildi uppskriftinni með fylgjendum sínum á Instagram og sló heldur betur í gegn.

Kartöflumeðlæti með leynihráefni

  • 2 kíló litlar kartöflur, skornar í 1 cm sneiðar.
  • 2 msk. ólífuolía
  • 50 g smjör
  • season all
  • salt og pipar
  • 1-2 msk. hunang
  • ferkt timían til skrauts (ef vill)

Aðferð:

  1. Sjóðið kartöflurnar í potti í 4-5 mínútur, þar til örlítið mjúkar.
  2. Hitið ofninn á 200°. Setjið ólífuolíu og smjör á bökunarplötu og inn í ofn í 2 mínútur þar til smjörið er bráðið. Setjið þá kartöflurnar á plötuna og veltið upp úr smjörblöndunni. Kryddið.
  3. Dreifið úr kartöflunum þannig að þær liggi ekki ofan á hvor annari. Kannski er þörf á annari bökunarplötu.
  4. Bakið kartöflurnar í 30 mínútur, snúið þeim þá við og bakið áfram í 25-30 mínútur þar til krispí.
  5. Dreypið hunangi yfir kartöflurnar á meðan heitar og stráið söxuðu fersku timían yfir.
Næringarfræðingurinn Laura Ford á heiðurinn af kartöflumeðlætinu.
Næringarfræðingurinn Laura Ford á heiðurinn af kartöflumeðlætinu. Mbl.is/Instagram_Laurafordnutrition
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert