Klessukaka með heimagerðum vanilluís og lakkríssósu

Ljósmynd/María Gomez

Hér er hreint ótrúlega góð kaka sem við mælum heilshugar með. Það er María Gomez á Paz.is sem á uppskriftina sem hún toppar með heimagerðum vanilluís og lakkríssósu.

Klessukaka með heimagerðum vanilluís og lakkríssósu

Klessukaka

  • 70 g mjúkt smjör
  • 150 g púðursykur
  • 1 egg
  • 1 tsk. vanilludropar
  • 115 g hveiti
  • 3 msk. kakó
  • 1/2 tsk. matarsódi
  • 1/2 tsk. salt
  • 100 g mjólkursúkkulaðidropar
  • 100 g hvítir súkkulaðidropar
  • 10 stk. Walkers-karamellur með lakkrísbragði skornar í 4-6 bita

Ís

  • 150 g sykur
  • 8 stk. eggjarauður eða 2 dl
  • 1/2 lítri rjómi
  • 1 tsk. vanilludropar

Lakkríssósa

  • 150 g Walkers-karamellur með lakkrísbragði
  • 100 g suðusúkkulaði
  • 1 1/2 dl rjómi
  • klípa af grófu salti

Aðferð:

Klessukaka

  1. Kveikið á ofninum á 180°C blástur
  2. Setjið mjúkt smjör, púðursykur, egg og vanilludropa í hrærivélarskál og hrærið saman með hræraranum þar til létt og ljóst
  3. Setjið svo hveiti, kakó, matarsóda og salt og hrærið áfram þar til er komið klístrað deig
  4. Skerið karamellurnar í 4-6 bita og bætið út í ásamt súkkulaðidropunum en best er að hræra svo með höndunum eða örstutt í hrærivél því karamellurnar eru harðar
  5. Bakið í 15-20 mínútur en ég hafði mína í akkúrat 18 mín.
  6. Best er að bera kökuna fram heita beint úr ofninum með ísnum og heitri sósu

Ís

  1. Þeytið rjómann og leggið til hliðar
  2. Þeytið næst eggjarauður, sykur og vanilludropa saman þar til fallega froðukennt og mjúkt og nánast eins og frauð
  3. Blandið svo eggjarauðufrauðinu saman við rjómann ofurvarlega með sleif þar til vel blandað saman
  4. Setjið að lokum í mót, helst sílíkonmót, og frystið lágmark átta tíma

Lakkríssósa

  1. Setjið allt saman í pott yfir meðalhita og leyfið að hitna
  2. Þegar þið sjáið að súkkulaði er byrjað að bráðna hrærið þá vel í pottinum allan tímann
  3. Sósan er til þegar karamellur og súkkulaði er alveg bráðnað saman við rjómann og orðið silkimjúkt og slétt
  4. Berið sósuna fram heita ásamt heitri kökunni og ísnum
Ljósmynd/María Gomez
Ljósmynd/María Gomez
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert