Dýrindis desert á 15 mínútum

Royalbúðingurinn klikkar ekki frekar en fyrri daginn og með því …
Royalbúðingurinn klikkar ekki frekar en fyrri daginn og með því að þeyta hann upp í rjóma verður hann að dýrindis hátíðareftirrétti. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Hér er á ferðinni ofureinfaldur eftirréttur sem tók um 15 mínútur að útbúa og koma í kæli. Það eru ekki mörg hráefni en það þarf að þrífa hrærivélarskálina 3 x í röð til að koma þessu heim og saman.

Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á heiðurinn af þessari uppskrift sem allir ættu að ráða við.

 „The ROYAL“

Uppskrift dugar í 8-10 glös

Súkkulaðilag
  • 1 pk. Royal-súkkulaðibúðingur
  • 300 ml nýmjólk
  • 300 ml rjómi
  • 2 msk. bökunarkakó
  1. Hrærið öll hráefnin saman á meðalhraða þar til léttur og þykkur búðingur hefur myndast.
  2. Skiptið niður í falleg glös og geymið pláss fyrir næstu lög (gott að notast við sprautupoka/zip lock-poka).
  3. Stráið smá Snickerskurli og krispkúlum yfir áður en þið setjið karamellubúðinginn.
Karamellulag
  • 1 pk. Royal-saltkaramellubúðingur
  • 300 ml nýmjólk
  • 300 ml rjómi
  • Hrærið öll hráefni saman á meðalhraða þar til léttur og þykkur búðingur hefur myndast.
  • Skiptið niður í glösin og geymið pláss fyrir rjóma og topp (gott að notast við sprautupoka/zip lock-poka).
Toppur og annað hráefni
  • 4 stk. Snickers-súkkulaðistykki (rifin gróft niður)
  • litlar krispkúlur
  • 300 ml þeyttur rjómi
  1. Sprautið rjómatopp efst í hvert glas og stráið Snickerskurli og krispkúlum yfir allt.
  2. Kælið fram að notkun.
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
Ljósmynd/Berglind Hreiðars
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert