Ísbúðin Skúbb opnuð í Hafnarfirði

Ísgerðin Skúbb opnaði í dag nýja ísbúð í Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði. Þetta er önnur ísbúðin sem Skúbb rekur en fyrir er ísbúð á Laugarásvegi 1 í Reykjavík.

„Hugmyndin á bak við Skúbb er að gera handgerðan ís frá grunni með bestu vörum sem völ er á og velja alltaf lífrænt og aukaefnalaust ef hægt er. Við notum aðeins lífræna mjólk frá Bíó Bú. Úrvalið okkar samanstendur af handgerðum ís, íslokum, ísrefum, íssósum, ístertum, smákökum, toppings og fleira. Við notum alvöruhráefni við gerð íssins sem gerir bragðið ósvikið, ferskt og engu líkt,“ segir Jóhann Friðrik Haraldsson, yfirsmakkari hjá Skúbb.

„Við leggjum áherslu á að bjóða upp á gott veganúrval og höfum þróað fjölmargar tegundir af veganís. Brauðformin okkar eru alltaf vegan og við leitumst við að bjóða upp á veganútgáfur af öllum okkar vörutegundum,“ segir Jóhann Friðrik ennfremur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert