Nóróveirur geta dreift sér hratt á jólunum

Ljósmynd/Colourbox

Matvælastofnun vill brýna fyrir fólki að gæta fyllsta hreinlætis í eldhúsinu nú þegar flestir landsmenn eru að elda eitthvað algjörlega frábært fyrir jólin. Markmiðið sé að halda jól án matarsýkinga en veirur og sjúkdómsvaldandi bakteríur geta dreift sér hratt sé ekki hugað að hreinlæti.

Mikið álag er á eldhúsum landsmanna við jólaundirbúning í desember og yfir hátíðirnar. Hreinlæti, kæling og rétt hitun matvæla er afar mikilvæg svo koma megi í veg fyrir að gestir og heimilisfólk fái matarborna sjúkdóma með tilheyrandi óþægindum.

Sjúkdómsvaldandi bakteríur geta borist inn í eldhúsið með kjöti og jarðvegi sem fylgir grænmeti og borist þaðan í önnur matvæli á eldhúsborðinu eða í ísskápnum. Einnig geta þær borist í matvæli frá þeim sem meðhöndlar matvælin og frá þeim búnaði og áhöldum sem eru notuð í eldhúsinu.

Nóróveirur geta dreift sér hratt á jólunum og mikilvægt að einstaklingar með einkenni matarborinna sjúkdóma haldi sig frá matargerð. Reglulegur handþvottur minnkar líkur á smiti milli aðila eða frá menguðum matvælum.

Höfum í huga að:

  • Hrátt kjöt og safi úr því á ekki að komast í snertingu við matvæli sem eru tilbúin til neyslu
  • Þvoum ávexti og grænmeti til að koma í veg fyrir að bakteríur berist í matvæli sem eru tilbúin til neyslu
  • Þvoum hendur áður en hafist er handa við matreiðslu og eftir snertingu við hrátt kjöt og óþvegið grænmeti
  • Þrífum skurðarbretti og áhöld strax eftir notkun
  • Skipuleggjum ísskápinn vel og höldum honum hreinum til að koma í veg fyrir krossmengun
  • Skiptum reglulega um borðtuskur, viskastykki og handþurrkur

Bakteríur fjölga sér mjög hratt við kjöraðstæður. Við 37°C getur ein baktería fjölgað sér í 1000 á 3 tímum og í 1 milljón á 6 tímum. Það er því mikilvægt að geyma og meðhöndla matvæli við það hitastig að komið verði í veg fyrir hraða fjölgun baktería með því að takmarka þann tíma sem viðkvæm matvæli, s.s. reyktur og grafinn fiskur og álegg, er á borðum við stofuhita. Mest hætta er á fjölgun baktería þegar hitastig matvælanna er milli 5 og 60°C. Nægileg hitameðhöndlun drepur bakteríur og geymsla við kælihitastig (0-4°C) takmarkar fjölgun þeirra. Ef halda á matvælum heitum skal þeim haldið við 60°C og við kælingu hitaðra matvæla skal gæta þess að þau nái 4°C á 3 tímum.

Landsmenn eru hvattir til að tileinka sér hreinlæti, rétta meðhöndlun og kælingu matvæla í eldhúsinu svo koma megi í veg fyrir að matarbornir sjúkdómar spilli jólagleðinni.

Ítarefni


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert