Besta máltíðin eftir jólasteikina

Humartaco! Uppskrift frá Hildi Rut sem bragðast upp á tíu.
Humartaco! Uppskrift frá Hildi Rut sem bragðast upp á tíu. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Þegar við höfum raðað í okkur smákökum og jólasteikin er farin að setjast vel á hliðarnar er gott að grípa í ljúffenga uppskrift sem þessa  taco með humri, beikoni og hvítlauks- og steinseljusósu. Uppskriftin er frá Hildi Rut matarbloggara á Trendnet.

Besta máltíðin eftir jólasteikina (6-8 tacos)

  • 330 g skelflettur humar frá Sælkerafiski (1 pakkning)
  • 1 msk ólífuolía
  • 4 msk steinselja, smátt söxuð
  • 1 hvítlauksrif, pressað eða rifið
  • salt & pipar
  • chiliflögur
  • 1 msk smjör
  • 8-10 beikonsneiðar
  • 6-8 Street taco frá Mission
  • Philadelphia-rjómaostur eftir smekk
  • 4-6 kokteiltómatar, smátt skornir
  • 4-5 dl rauðkál
  • granatepli eftir smekk

Sósa

  • 4 msk Heinz-majónes
  • 2 msk sýrður rjómi
  • ½ hvítlauksrif, pressað eða rifið
  • 3 msk steinselja, smátt skorin
  • safi úr ½ sítrónu
  • salt & pipar

Aðferð:

  1. Blandið saman í skál humri, ólífuolíu, steinselju, hvítlauk, chiliflögum, salti og pipar. Leyfið þessu að liggja saman á meðan þið undirbúið meðlætið.
  2. Skerið rauðkál og tómata smátt og fjarlægið fræin úr granateplinu.
  3. Útbúið sósuna. Hærið saman í skál majónesi, sýrðum rjóma, hvítlauk, steinselju, sítrónusafa, salti og pipar.
  4. Leggið beikonið á bökunarplötu þakta bökunarpappír og bakið í 10-12 mínútur við 200°C eða þar til það er orðið vel stökkt. Skerið beikonið smátt.
  5. Steikið humarinn upp úr smjöri. Það tekur aðeins örfáar mínútur fyrir humarinn að eldast.
  6. Steikið tortillurnar upp úr smá olíu þar til þær verða örlítið stökkar. Tekur litla stund. Þið getið líka bakað þær í ofni en þá er gott að bera smá ólífuolíu á þær.
  7. Smyrjið tortillurnar með rjómaosti eftir smekk. Því næst raðið þið rauðkáli í botninn, tómötum, humri, beikoni, sósunni og dreifið granateplafræjunum yfir. Njótið!
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert