Síld með heimabökuðu rúgbrauði

Ljósmynd/María Gomez

Það er alltaf gaman að fá nýjar uppskriftir að rúgbrauði enda lítið mál að baka það ef uppskriftin er góð. Síldin er svo að sjálfsögðu fastur hluti af jólahátíðinni enda engin jólaveisla fullkomnuð nema boðið sé upp á alvörusíld.

Það er María Gomez á Paz.is sem á þessa uppskrift sem hún er ákaflega ánægð með og hefur fylgt henni lengi.

„Ég er ekkert að skrökva þegar ég segi að þetta rúgbrauð er bara eitt af því besta sem ég hef smakkað en uppskriftina að því samdi ég fyrir langalöngu,“ segir María um brauðið góða.

„Það er ekki bara gott heldur líka afar einfalt í bakstri. Það er eitt lykilhráefni sem ég nota og held að geri brauðið svona gott. Leynihráefnið hér er melassi (molasses á ensku) sem gerir brauðið sætt, rakt og dökkt á litinn eins og alvörurúgbrauð á að vera. Melassi er dökkt, þykkt en ekki mjög sætt síróp sem verður til þegar sykur er unninn úr sykurreyr, en það fæst alltaf í heilsuhorni verslana eða heilsubúðum.

Hér þarf aðeins skál, desilítramál og sleif til verksins, og svo 35-40 mínútur í ofni og ekkert meira vesen.“

Rúgbrauðið hennar Maríu

  • 2 dl rúgmjöl
  • 2½ dl spelt eða hveiti (gróft eða fínt, þið ráðið, eða blandað saman)
  • 1 msk. vínsteinslyftiduft
  • ½ tsk. salt (fínt borðsalt)
  • 1 dl melassi (fæst í Fræinu í Fjarðarkaupum og heilsuverslunum)
  • 1 dl mjólk
  • 1½ dl soðið heitt vatn
  • Jóla-smørrebrød, smurbrauð á góðri íslensku
  • sneið af heimabökuðu rúgbrauði
  • síld frá Abba með sósu að eigin vali
  • sultaður rauðlaukur
  • ferskt dill

Aðferð

Blandið saman öllum þurrefnum í skál og hrærið með sleif.

Setjið næst ab-mjólk (ekki hræra strax).

Setjið svo melassa og sjóðandi heita vatnið saman og hrærið vel í glasi eða lítilli skál svo melassinn leysist vel upp.

Hellið svo út í þurrefnin og ab-mjólkina og hrærið allt vel saman með sleif.

Passið að hæra bara þar til allt er vel blandað saman og reynið að hræra sem allra minnst svo brauðið verði ekki seigt.

Setjið í smurt brauðform.

Bakið á 180-190C° blæstri í 35-40 mínútur.

Þegar brauðið á að vera til er gott að stinga ofan í það hníf og ef hann kemur hreinn upp úr er brauðið tilbúið.

Punktar

Með þessari uppskrift verður brauðið svona litlar sneiðar en ef þið viljið hafa þær stórar þá þarf að tvöfalda uppskriftina. Melassann hef ég keypt í Fræinu í Fjarðarkaup en býst við að hann fáist einnig í Hagkaup og heilsubúðunum.

Ljósmynd/María Gomez
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert