Salatið sem mittismálið elskar

Einstaklega gott sesar salat frá Snorra hjá Matur og myndir …
Einstaklega gott sesar salat frá Snorra hjá Matur og myndir - og dressingin er upp á tíu. Mbl.is/Snorri Guðmundsson

Brakandi ferskt sesarsalat með beikoni, heimagerðum brauðteningum og óheyrilega góðri dressingu – er það sem mittismálið óskar eftir á nýju ári. Uppskriftin er í boði Snorra Guðmunds hjá Mat og myndum.

Salatið sem mittismálið elskar (fyrir 2)

  • Kjúklingabringur, 2 stk.
  • töfrakrydd, 1 msk. / Pottagaldrar
  • romainesalat, 1 meðalstór haus
  • kirsuberjatómatar, 80 g
  • rauðlaukur, 1 lítill
  • súrdeigsbrauðsneiðar, 2 stk.
  • hvítlauksduft, 0,5 tsk.
  • beikonsneiðar, 6 stk.
  • ansjósur, 2 stk. / fást í dós í Melabúðinni
  • hvítlaukur, 4 g / eitt rif
  • parmesan, 15 g + meira eftir smekk yfir salatið
  • japanskt majónes, 60 g / má vera venjulegt
  • hvítvínsedik, 0,5 msk.
  • stillið ofn á 180°C með blæstri.

Aðferð:

  1. Veltið kjúklingabringum upp úr smá olíu og kryddið með töfrakryddi. Látið marinerast á meðan unnið er í öðru.
  2. Dreifið beikonsneiðum yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í miðjum ofni í 12-15 mín. (fylgist vel með svo beikonið brenni ekki við).
  3. Rífið súrdeigsbrauðið í bita og veltið upp úr ólífuolíu, salti og hvítlauksdufti. Dreifið yfir ofnplötu og bakið í neðstu grind í ofni í um 10 mín. eða þar til brauðið er orðið fallega gyllt.
  4. Rífið 15 g af parmesan með fínu rifjárni og pressið hvítlauksrif. Maukið saman ansjósur, rifinn parmesanost, pressaðan hvítlauk, majónes, hvítvínsedik og 0,5 msk af vatni með töfrasprota þar til allt hefur samlagast að fullu. Smakkið til með salti ef þarf.
  5. Hitið smá olíu á pönnu við meðalháan hita og steikið kjúklingabringurnar í 2,5 mín á hvorri hlið. Færið kjúklinginn í eldfast mót og bakið í miðjum ofni í 15 mín eða þar til kjúklingurinn er hvítur í gegn og fulleldaður.
  6. Leyfið kjúklingnum að hvíla og sneiðið ekki fyrr en rétt áður en maturinn er borinn fram svo hann haldist safaríkur.
  7. Saxið romainesalat gróft, sneiðið rauðlauk, skerið tómata í bita, skerið beikon í bita.
  8. Setjið salat, lauk, brauðteninga, tómata og beikon í stóra skál ásamt rúmlega helmingnum af dressingunni og blandið vel saman. Dreifið kjúkling yfir og rífið parmesanost yfir eftir smekk.
  9. Berið fram með afganginum af dressingunni til hliðar.
Mbl.is/Snorri Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert