Nýtt meðlæti á matseðli Dominos

Veganúar er brostinn á með öllum sínum frábæru vegannýjungum og nú hefur Dominos bætt í og er með þrenns konar meðlæti á matseðlinum sem er vegan, þar af tvennt nýtt.

Um er að ræða gömlu góðu brauðstangirnar sem núna hafa verið baðaðar í sterkri cajunkryddolíu, vinsæla kanilgottið sem er nú bakað úr létta deiginu en þar er notuð kanilolía í stað kanilsmjörs. Að síðustu eru það kartöflubátarnir sem eru og hafa alltaf verið vegan.

Að sögn Helgu Thors, markaðsstjóra Dominos er þetta forsmekkurinn að veganúrvali á Veganúar og verður úrvalið aukið hægt og rólega út janúar. Þess megi jafnframt geta að pítsan Vegas er veganpítsa en hún kom á matseðil í fyrra og var unnin með veganrýnihópi Dominos. Það sé kannski ekki hægt að segja að grænkerar séu stór hópur viðskiptavina hjá Dominos, en hann fari stöðugt vaxandi, auk þess sem Vegas hefur verið vinsæl hjá grænmetisætum og öðrum sem huga almennt að heilsunni. Það sé því afar ánægjulegt að geta boðið upp á breiðara vöruúrval fyrir þann hóp.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert