Nýtt og spennandi frá Ferm Living

Þessi fagra vatnskanna frá Ferm Living mun koma á markað …
Þessi fagra vatnskanna frá Ferm Living mun koma á markað í lok mars mánaðar. mbl.is/Ferm Living

Með hlýjum og náttúrulegum tónum kynnir Ferm Living nýjustu afurðir sínar fyrir vorið.

Danski húsbúnaðarrisinn Ferm Living hefur tekið forskot á sæluna, eða vorið og sumarið, með því að kynna nýja vöru sem væntanleg er á markað. Með því að fagna töfrum útirýmisins og þeirri einstöku, kyrrlátu tilfinningu sem fylgir því að eyða tíma í náttúrunni kýs Ferm Living að kalla það „ljóð utandyra“, sem endurspeglast í nýju vörunum þeirra. Við sjáum einstaklega fallega vatnskönnu sem hugsuð er til að vökva útiblómin, framleidd úr endurunnu plasti. Kannan er straumlínulaga og er jafn nytsamleg og hún er falleg – og þá er markmiðinu náð.

Vatnskannan rúmar fimm lítra af vatni og passar jafn vel á svalirnar sem og inn í stofu  en hún mun vera fáanleg í þremur litum, svörtu, kasmír og ólífugrænu. Samkvæmt heimasíðu Ferm Living eru könnurnar væntanlegar í lok mars, sem nánast er handan við hornið.

Kannan rúmar 5 lítra af vatni og er einstaklega löguleg …
Kannan rúmar 5 lítra af vatni og er einstaklega löguleg í útliti. mbl.is/Ferm Living
Kannan verður fáanleg í þremur litum - svörtu, kasmír og …
Kannan verður fáanleg í þremur litum - svörtu, kasmír og ólífugrænu. mbl.is/Ferm Living
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert