Framleiða bjór til minningar um Loft Gunnarsson

Umbúðirnar eru hannaðar af Davíð Arnari Baldurssyni en á þeim …
Umbúðirnar eru hannaðar af Davíð Arnari Baldurssyni en á þeim er teikning af Lofti eftir Þóri Celin sem var unnin eftir ljósmynd sem Matthías Kristinsson tók sem var vinur Lofts.

Minningarsjóður Lofts Gunnarssonar, Ægir Brugghús og Mói ölgerðarfélag hafa tekið höndum saman um framleiðslu á bjórnum Loftur lager.

Bjórinn er framleiddur til minningar um Loft Gunnarsson og mun allur ágóði af sölu bjórsins renna óskiptur í minningarsjóðinn, sem hefur allt frá stofnun hans árið 2012 unnið að bættum hag heimilislausra og jaðarsettra hópa.

Loftur lést langt fyrir aldur fram hinn 20. janúar 2012 úr blæðandi magasári, sem allajafna er auðvelt að lækna ef meðhöndlað í tæka tíð. Hann var andlit sem margir, sem áttu leið um miðbæ Reykjavíkur þekktu. Hann var einn af þeim sem oft sáust mæla göturnar í höfuðborginni, auðþekkjanlegur af hávöxnum líkama, fallegum himinbláum augum, miklu skeggi, hermannajakkanum skrautlega, mörgum húðflúrum og breiðu og stóru brosi. Hann var alltaf líklegur til að kasta kveðju á náungann, er hann mætti honum, og hélt svo áfram sína leið. Falleg sál í litríkum umbúðum. Hjartahlýr og örlátur á það litla sem hann átti. Allir voru jafnir í hans huga og hann sá alltaf það besta og bjarta í fólki.

Minningarsjóður Lofts Gunnarssonar hefur frá stofnun hans árið 2012 verið áberandi í umræðunni um þessi málefni og er í nánu samtali og samstarfi við velferðarsvið Reykjavíkurborgar, VOR-Teymið og úrræði fyrir heimilislausa svo sem gistiskýlin og konukot. Sjóðurinn hefur keypt fjölda rúma, sjónvörp, húsgögn, fatnað og margt fleira inn í hin ýmsu úrræði sem eru til staðar. Á síðasta ári ári keypti sjóðurinn húsgögn og margt fleira inn í gistiskýlið á Lindargötu, keypti rúm og tæki inn í nýju smáhýsin í gufunesi og styrkti hið mikilvæga verkefni Frú Ragnheiði um 4 milljónir til kaups á nýjum bíl. Frá upphafi þá hefur sjóðurinn ráðstafað yfir 20 milljónum til bæta aðbúnaðinn við hópinn en fjöldi heimilislausra hefur tvöfaldast á síðustu fimm árum.

Bjórinn kemur í Vínbúðir næstkomandi miðvikudag, á dánardag Lofts, til að heiðra minningu hans.

Bjórinn mun fást í Heiðrúnu, Skútuvogi, Garðabæ og Stekkjarbakka. Þá munu veitingastaðir á höfuðborarsvæðinu einnig bjóða upp á bjórinn af krana. Frekari upplýsingar um þátttöku veitingastaða í verkefninu verða kynntar á samfélagsmiðlum samstarfsaðilanna.

Allar frekari upplýsingar um minningarsjóðinn má finna HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert