Það er tacoþriðjudagur! Geggjuð uppskrift frá Hildi Rut

Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér er réttur fyrir hið fullkomna „taco Tuesday“ kvöld sem og hvert annað kvöld vikunnar – því þetta risarækjutaco er afar ljúffengt. Uppskriftin kemur úr smiðju Hildar Rutar sem segir rækjurnar einar og sér vera frábærar með Sriracha sósunni.

Risarækjutaco með spæsí sósu (fyrir tvo - þrjú taco á mann)

  • 6 litlar tortillur, soft taco (ég nota frá Santa maria sem fæst í Hagkaup)
  • 18 risarækjur, hráar
  • 1-2 hvítlauksrif, pressað
  • Chili flögur
  • Salt og pipar
  • 1-2 msk. ólífuolía
  • Ólía til djúpsteikingar

Tempura deig

  • 130 g hveiti + smá auka
  • ¼ tsk matarsódi
  • 1 eggjarauða
  • 220 ml sódavatn, mjög kalt

Kínakálsalat

  • Kínakál, 4 blöð
  • 2 tómatar
  • 2-3 msk. rauðlaukur
  • ½-1 rautt chili
  • 1-2 avókadó
  • Safi úr ½ lime
  • Salt og pipar

Sriracha mayo

  • 4 msk. majónes (ég notaði Hellmanns)
  • 1 tsk sriracha sósa
  • 1-2 msk. ferskur kóríander, smátt saxað
  • Safi úr ½ lime
  • Toppa með ferskum kóríander, eftir smekk

Aðferð:

  1. Blandið saman í skál risarækjum, ólífuolíu, hvítlauksrifi, chili flögum, salti og pipar.
  2. Því næst gerið þið tempura deigið. Blandið saman hveiti og matarsóda í skál. Hrærið saman eggjarauðu og sódavatni og blandið saman við hveitiblönduna. Saltið og piprið eftir smekk. Haldið tempura blöndunni kaldri því þá verður deigið stökkara og betra.
  3. Hellið olíu í rúmgóðan pott þannig að olían þeki risarækjurnar. Hitið olíuna. Gott ráð er að dýfa tréskafti ofan í t.d. á trésleikju og ef að það sýður (bubblar) þá er olían tilbúin.
  4. Hellið hveiti á disk og veltið risarækjunum upp úr því. Að því loknu veltið þeim upp úr tempura deiginu og steikið upp úr olíunni þangað til að rækjurnar eru orðnar gylltar og stökkar. Ég nota stáltangir í þetta verk. Það tekur í kringum 2 mínútur að fullelda rækjurnar.
  5. Steikið tortillurnar upp úr smá olíu og fyllið þær með salatinu, risarækjunum, sósunni og toppið svo með kóríander.

 

Kínakálsalat

  1. Skerið kínakál, tómata, rauðlauk, avókadó og chili smátt. Kreistið safa úr lime og saltið og piprið. Blandið öllu vel saman.

Sriracha sósa

  1. Blandið saman majónesi, sriracha sósu, kóríander og safa úr lime.
Taco Tuesday! Hér er girnileg uppskrift að risarækjutaco með spæsí …
Taco Tuesday! Hér er girnileg uppskrift að risarækjutaco með spæsí mæjó. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert