Af hverju borðum við svona mikið?

Það eru margir þættir sem hafa áhrif á matarvenjur okkar …
Það eru margir þættir sem hafa áhrif á matarvenjur okkar - án þess að við verðum sérstaklega var við það. mbl.is/

Stórfurðulegar staðreyndir um matarhegðun, sem í raun er undir áhrifum frá utanaðkomandi þáttum allt um kring. Hér eru nokkrar af þeim.

  • Þú borðar allt að 30% meira ef þú borðar með annarri manneskju.
  • Matarneysla reynist vera 15% meiri ef kveikt er á útvarpinu á meðan þú borðar.
  • Þú borðar 43% meira af M&M ef þér býðst skál með tíu mismunandi litum í stað skálar með sjö litum – jafnvel þó að allt bragðist nákvæmlega eins.
  • 15 er fjöldi ákvarðana sem við teljum okkur að meðaltali taka varðandi mat á dag. En rauntalan er í raun 220.
  • Í tilraun sem gerð var á ákveðnum hópi fólks fékk helmingurinn „botnlausa“ súpuskál en hinn helmingurinn venjulega skál. Þeir sem borðuðu upp úr botnlausri skál borðuðu um 76% meira en hinir.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert