Geggjaðar fylltar kjúklingabringur

Ljósmynd/Valla

Það er hún Valla hjá GRGS sem á þessa uppskrift sem passar alltaf enda ein af þessum uppskriftum sem virka bæði hversdags og spari.

„Þessar kjúklingabringur eru alveg brjálæðislega góðar og fullkominn laugardagsréttur eða jafnvel fyrir matarboðið. Hann er ekki flókinn í gerð og tekur ekki langan tíma. Ég bar þær fram með sætkartöfluteningum en það passar jafn vel að hafa hrísgrjón og jafnvel eitthvert gott pasta. Salat og gott hvítvín væri nú heldur ekki amalegt!“ segir Valla um uppskriftina.

Fylltar kjúklingabringur með sveppum, spínati, hvítlauksosti og pipar-mozzarella

  • 4 kjúklingabringur
  • 1/2 sveppabox
  • 4 kubbar frosið spínat, þítt
  • 20 g smjör
  • 1/2 kryddostur með hvítlauk frá Örnu
  • 100 g mozzarella með pipar frá Örnu
  • Hvítlauksduft, svartur pipar, sjávarsalt
  • Samlokukrydd frá Pottagöldrum eða gott kjúklingakrydd

Leiðbeiningar

1. Byrjið á því að skera vasa í kjúklingabringurnar

2. Skerið sveppina í sneiðar og þíðið spínatið

3. Setjið smjörið á pönnu og steikið sveppina þar til þeir eru farnir að brúnast. Bætið spínatinu saman við og steikið áfram í 2-3 mín.

4. Setjið ostinn í skál og heita sveppablönduna yfir. Heitir sveppirnir bræða aðeins ostinn og þá binst þetta saman.

5. Setjið 1/4 af blöndunni inn í hverja bringu og setjið í eldfast mót.

6. Berið fram með sætkartöfluteningum, hrísgrjónum, salati eða hverju sem ykkur dettur í hug.

7. Ofnbakið bringurnar á 200°C í 25 mín.

Þessar kjúklingabringur eru alveg brjálæðislega góðar og fullkominn laugardagsréttur eða jafnvel fyrir matarboðið. Hann er ekki flókinn í gerð og tekur ekki langan tíma. Ég bar þær fram með sætkartöfluteningum en það passar jafn vel að hafa hrísgrjón og jafnvel eitthvað gott pasta. Salat og gott hvítvín væri nú heldur ekki amalegt!

Ljósmynd/Valla
Ljósmynd/Valla
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert