Upphitunin fyrir Ofurskálina er hafin en leikurinn fer fram í Florida-fylki í Bandaríkjunum þann 7. febrúar. Auglýsingarnar eru alla jafna stærsta málið og leggja fyrirtæki mikla peninga í að gera bæði fyndnar og skemmtilegar auglýsingar með það að markmiði að komast í sögubækur Ofurskálarinnar.
Hellmann´s og Amy Schumer munu leiða saman hesta sína og má slá því föstu að það verði einhver tímalaus snilld á ferðinni.
Hér gefur að líta upphitunar-stikluna sem birt hefur verið sem lofar ansi hreint góðu.