Geggjað „pop-up“ á Götumarkaðinum næstu tvær helgar

Ljósmynd/Aðsend

Sono Matseljur munu bjóða upp á grænmetis- og vegan meze (smáréttir) þar sem brögð Mið-Austurlandanna mæta harðneskju hinnar íslenskrar náttúru.  

Hildigunnur og Silla eru listrænt teymi úr tónlistarheiminum sem eru helteknar af mat. Þær sérhæfa sig í listrænni grænmetis- og veganmatseld í nýlegri matarþjónustu sinni sem þjónar hvers kyns matarlöngunum viðskiptavina sinna.

Silla er grasagudda og matselja og hefur kokkað og bruggað seyði um árabil. Matur hennar einkennist af jurtum saman við heilsusamlegan mat sem nærir líkama og sál. Hildigunnur er þekkt sem Hildigunnur matráður og töfrar fram listrænar grænkerakræsingarnar. Það sem finna má í mat þeirra eru jurtir úr sveitinni sem þær tína, verka og rækta í takti við árstíðarnar sem er þeirra innblástur hverju sinni.

Sono Matseljur verða í kjallara Götumarkaðsins Klapparstíg 28-30 (við Hjartatorg þar sem Skelfiskmarkaðurinn var áður) í gullfallegu eldhúsi með yndislegu setuplássi, en ekki ýkja mörgum sætum, svo tryggið ykkur sæti þið sem viljið sitja sem næst okkur. Annars er pláss á efri hæðinni með bar og öðru gúmmelaði sem má vel blanda saman að vild, og við munu að sjálfsögðu afgreiða svo lengi sem til er matur.

Afgreiðslutími er eftirfarandi:

Mið: 17.00-21.00

Fim: 17.00-21.00

Fös: 17.00-22.00

Lau: 17.00-22.00

Sun: 16.00-20.00

Ljósmynd/Aðsend
Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert