Þróaði fullkominn staðgengil fyrir pasta og hrísgrjón

Barenaked-pasta og -hrísgrjón eru fullkominn valkostur fyrir alla sem vilja minnka hlutfall kolvetna í mataræði sínu og þá sem eiga við sykursýki eða glútenóþol að stríða. Barenaked-lágkolvetnavörurnar eru fitusnauðar og innihalda einungis 15-22 kaloríur í hverjum skammti.

Fyrirtækið Barenaked var stofnað árið 2011 af Ross Mendham. Ross hafði árum saman barist við að ná stjórn á þyngd sinni og farið í alls konar megrunarkúra en alltaf fallið fyrir pasta sem var hans eftirlætisfæða. Hann leitaði um allt að lágkolvetnaútgáfu af pasta, á netinu, í matvöruverslunum og heilsuvörubúðum, en án árangurs. Í kjölfarið fékk Ross þá frábæru hugmynd að leita leiða til að gera uppáhaldsmatinn sinn aðgengilegan fyrir alla, líka þá sem eru á sérstöku mataræði annaðhvort að eigin vali eða af heilsufarsástæðum. Nú framleiðir Barenaked hollar bragðgóðar lágkolvetnavörur sem hægt er að nota í staðinn fyrir hefðbundið pasta, núðlur eða hrísgrjón.

Lykilhráefni í Barenaked-vörunum er konjac-rótin sem er ræktuð víða í Asíu og er nánast kaloríu- og kolvetnasnauð. Konjac-rótin er mjög trefjarík en inniheldur hvorki fitu, sykur né sterkju. Hún er því frábær kostur fyrir þá sem aðhyllast kolvetnaminna mataræði, ketó, LKL eða eru vegan. Í Barenaked-vörunum er blanda af konjac-rót, sojabaunamjöli og haframjöli en þannig fæst áferð sem líkist hefðbundnum rísnúðlum. Núðlurnar og hrísgrjónin eru fljótelduð og drekka í sig bragð af hvers kyns sósum, súpum og kryddum.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert