Samlokan sem er að setja allt á hliðina

Ein besta ostasamloka síðari ára að hætti kokksins.
Ein besta ostasamloka síðari ára að hætti kokksins. Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks

Ostur og brauð er samsetning sem við gætum borðað í öll mál – eða svona næstum því. Hér er ostasamloka að hætti kokksins og þykir ótrúlega ljúffeng og ekki síður stórsnjöll. Það var ástralski kokkurinn Guillermo sem birti myndskeið á TikTok, um hvernig ætti að útfæra bestu ostasamloku síðari ára.

Ostasamloka að hætti kokksins

  • 1 heilt brauð
  • Rifinn ostur
  • Steinselja, söxuð
  • Smjör
  • Hvítlaukur, marinn
  • Parmesan

Aðferð:

  1. Skerið þykkar brauðsneiðar, allt að 4-5 cm þykkar og skerið skorpuna í burtu.
  2. Skerið niður í miðjuna þannig að hálfgerður vasi myndist í brauðið. Fyllið með rifnum osti.
  3. Bræðið smjör í potti og bætið við steinselju og hvítlauk, blandið vel saman. Pennslið báðar hliðar á brauðinu með hvítlaukssmjörinu.
  4. Steikið brauðið á pönnu og notið spaða til að ýta niður á brauðið og fletja út.
  5. Setjið parmesan-ost á toppinn og steikið þar til gyllt á lit á báðum hliðum.
  6. Dreypið smá smjöri aftur yfir toppinn og takið af pönnunni.
  7. Berið fram og njótið.
Skerið brauðið í þykkar sneiðar og skerið skorpuna af.
Skerið brauðið í þykkar sneiðar og skerið skorpuna af. Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks
Skerið niður í miðjuna þannig að hálfgerður vasi myndist í …
Skerið niður í miðjuna þannig að hálfgerður vasi myndist í brauðið. Fyllið með rifnum osti. Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks
Bræðið smjör í potti og bætið við steinselju og hvítlauk, …
Bræðið smjör í potti og bætið við steinselju og hvítlauk, blandið vel saman. Penslið báðar hliðar á brauðinu með hvítlaukssmjörinu. Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks
Steikið brauðið á pönnu og notið spaða til að ýta …
Steikið brauðið á pönnu og notið spaða til að ýta niður á brauðið og fletja út. Setjið parmesan-ost á toppinn og steikið þar til gyllt á lit á báðum hliðum. Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks
Dreypið smá smjöri aftur yfir toppinn og takið af pönnunni. …
Dreypið smá smjöri aftur yfir toppinn og takið af pönnunni. Berið fram og njótið. Mbl.is/ Tiktok/myhusbandcooks
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert