Kolvetnasnauða kjúklingasúpan sem sló í gegn

Ljósmynd/Berglind Guðmunds

Hér gefur að líta súpu sem þið eigið eftir að elska. Við erum að tala um austurlensku áhrifin alla leið og kjúklinginn sem gerir súpuna algjörlega einstaka. Til að toppa herlegheitin eru kolvetnalausar núðlur í súpunni sem ætti að fá einhverja til að skæla af ánægju. Flóknara þarf það ekki að vera: Fullkomin súpa sem er nánast kolvetnalaus.

Það er meistari Berglind Guðmunds á GRGS sem á heiðurinn af uppskriftinni.

Kolvetnalausa kjúklingasúpan sem sló í gegn

  • 1 rauð paprika, skorin í teninga
  • 1 laukur, skorinn í teninga
  • 1 msk. ferskt engifer, fínrifið
  • 3 msk. rautt karrímauk (curry paste)
  • 2 dósir kókosmjólk
  • 500 ml kjúklingakraftur (3 kjúklingateningar leystir upp í 500 ml heitu vatni)
  • 2 msk. fiskisósa
  • 2 msk. sukrin gold
  • 2 msk. sykurlaust hnetusmjör
  • 2-3 eldaðar kjúklingabringur eða eldaðar risarækjur
  • safi úr 1 límónu
  • 1 poki Barenaked-núðlur

Fyrir 4-6 manns

Leiðbeiningar

1. Léttsteikið lauk og papriku og bætið engifer saman við.

2. Bætið rauðu karríi, kókosmjólk, kjúklingakrafti, fiskisósu, púðursykri, hnetusmjöri og baunum saman við og hrærið vel í. Leyfið súpunni að malla við lágan hita í 45 mínútur eða eftir því sem tíminn leyfir.

3. Kreistið safa úr einni límónu út í og bætið einnig kjötinu saman við.

4. Hellið vökvanum af núðlunum og steikið í 2-3 mínútur.

5. Látið súpuna í skálar og bætið núðlum í hverja skál.

6. Gott er að toppa súpuna með söxuðu kóríander, vorlauk og söxuðum salthnetum.

Barenaked-pasta og -hrísgrjón eru fullkominn valkostur fyrir alla sem vilja minnka hlutfall kolvetna í mataræði sínu og þá sem eiga við sykursýki eða glútenóþol að stríða. Barenaked-lágkolvetnavörurnar eru fitusnauðar og innihalda einungis 15-22 kaloríur í hverjum skammti.

Lykilhráefni í Barenaked-vörunum er konjac-rótin sem er ræktuð víða í Asíu og er nánast kaloríu- og kolvetnasnauð. Konjac-rótin er mjög trefjarík en inniheldur hvorki fitu, sykur né sterkju. Hún er því frábær kostur fyrir þá sem aðhyllast kolvetnaminna mataræði, ketó, LKL eða eru vegan.

​Í Barenaked-vörunum er blanda af konjac-rót, sojabaunamjöli og haframjöli en þannig fæst áferð sem líkist hefðbundnum rísnúðlum. Núðlurnar og hrísgrjónin eru fljótelduð og drekka í sig bragð af hvers kyns sósum, súpum og kryddi. Á svipstundu má því töfra fram næringarríka og ljúffenga máltíð í erli dagsins í stað þess að grípa óhollan skyndibita. ​

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert