Vatnsdeigsbollur með saltkaramellu og banana- og kaffirjóma

Ljósmynd/Sylvía Haukdal

Frumleikinn og sniðugheitin í bollugerð hafa aldrei verið meiri og hér fer Sylvía Haukdal á kostum með bollu þar sem salkaramella og nýji bananasplitt-búðingurinn frá Royal eiga stórleik.

Vatnsdeigsbollur með saltkaramellu og banana- og kaffirjóma

Vatndeigsbollur

  • 3 stk. egg
  • 300 ml vatn
  • 160 g hveiti
  • 150 g smjör

Saltkaramella

  • 200 ml rjómi
  • 170 g sykur
  • 100 ml sýróp
  • 1 tsk. smjör
  • 1/2 - 1 tsk. sjávarsalt

Banana og kaffi rjómi

  • 1 pakki Royal bananasplitt með hvítu súkkulaði
  • 1/2 l mjólk
  • 2 msk. kaffi, uppáhelt
  • 700 ml Millac jurtarjómi, þeyttur

Vatndeigsbollur

  • Hitið ofninn í 180°C
  • Setjið vatn og smjör í pott. Þegar suðan er komin upp er potturinn tekinn af hitanum og hveitinu hrært saman við þar til deigið hættir að festast við hliðarnar og myndar hálfgerða kúlu.
  • Deigið er næst sett í hrærivélaskál og hrært þar til kólnar.
  • Þegar deigið hefur kólnað bætum við 1 eggi saman við í einu þar til þau hafa blandast vel saman við deigið.
  • Mótið bollur með sprautupoka (líka hægt að nota skeið) á bökunarpappír og bakið við 180° í um það bil 25 mínútur. Passið að opna ekki ofnin á meðan bollurnar eru að bakast.

Saltkaramella

  • Setjum öll hráefnin í pott og sjóðum þar til karamellan byrjar að þykkna, þá tökum við hana af hitanum og leyfum að kólna. Passa þarf að fylgjast vel með karamellunni og hræra reglulega.

Banana og kaffi rjómi

  • Við byrjum á það að búa til búðinginn eftir leiðbeiningum aftaná pakkanum og setum til hliðar.
  • Næst stífþeytum við jurtarjómann.
  • Að lokum er kaffinu, búðingnum og rjómanum blandað saman með sleif.

Samsetning

  • Skerum bollurnar í tvennt og skerum niður banana í sneiðar.
  • Röðum bananasneiðum í botninn á bollunni og setjum svo rjómann ofaná.
  • Setjum karamellu á lokið af bollunni og skreytum að vild. Gott er að hafa karamelluna aðeins heita þegar hún er sett á.

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram og Face­book. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Ljósmynd/Sylvía Haukdal
Ljósmynd/Sylvía Haukdal
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert