„Viltu giftast mér“-pasta

Í tilefni að Valentínusardeginum hefur Heinz sent frá sér sérstakan …
Í tilefni að Valentínusardeginum hefur Heinz sent frá sér sérstakan dósamat með bókstafapasta. Mbl.is/Heinz

Ef þig hefur einhvern tímann langað til að nota dósamat til að biðja ástina þína að giftast þér – þá er það þetta hér.

Í tilefni af stóra ástardeginum, valentínusardeginum, býður Heinz upp á dósamat sem aldrei fyrr; spagettístafi í tómatsósu í dós sem inniheldur eingöngu stafina M, A, R, Y og E; bókstafi til að skrifa „MARRY ME“ á frumlegan máta og skella bónorðinu beint á diskinn, í orðsins fyllstu merkingu.

Hugmyndin kom frá viðskiptavini sem hafði samband við fyrirtækið fyrir tveimur árum og sagði söguna af því þegar maðurinn hennar notaði stafapastað frá Heinz til að biðja hennar. Þannig hafi Heinz fengið hugmyndina, stokkið til og framleitt sérstaka útgáfu af dósapastanu í tilefni að valentínusardeginum í ár – og þá eingöngu með þessum sérstöku bókstöfum. Væri gaman að vita hversu margir fá bónorð með þessum máta í ár.

Mbl.is/Heinz
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert