Löðrandi ljúffeng ostasamloka Evu Laufeyjar

Ljósmynd/Gott í matinn

Brauð og ostur skilgreinist klárlega sem undirstöðufæðutegundir hér á landi og hér erum við með uppskrift frá Evu Laufeyju sem ætti að æra óstöðugan.

Grilluð samloka í sparibúningi!

4 skammtar

  • 4 sneiðar súrdeigsbrauð
  • 8 sneiðar skinka
  • 250 g Óðals Havarti krydd
  • 250 g Óðals Ísbúi
  • 200 g sýrður rjómi frá Gott í matinn
  • 1⁄2 stk. múskathneta
  • 100 g smjör
  • 2 msk. steinselja
  • blandað salat
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Hitið smjör á pönnu, steikið brauðsneiðarnar og snúið þeim við.
  2. Setjið handfylli af osti yfir hverja brauðsneið og tvær skinkusneiðar.
  3. Leggið brauðsneiðarnar saman og eldið þar til samlokurnar eru gullinbrúnar. Best að nota nóg af smjöri!
  4. Leggið samlokurnar á pappírsklædda ofnplötu og útbúið sósuna.
  5. Setjið sýrða rjómann, nýrifið múskat, salt og pipar í skál og hrærið.
  6. Bætið því næst 100 g af hvorum osti út í og hrærið áfram.
  7. Smyrjið ostasósunni yfir hverja brauðsneið og sáldrið svolítið meira af osti yfir.
  8. Grillið í ofni við 200°C í örfáar mínútur eða þar til osturinn er orðinn gullinbrún.
  9. Berið strax með fram með góðu salati.

Höfundur uppskriftar: Eva Laufey Hermannsdóttir

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert