Borðaði samloku á hverjum degi í mánuð

Myndir þú borða samloku með flögum sem álegg?
Myndir þú borða samloku með flögum sem álegg? Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter

Þegar valkvíðinn hellist yfir þig til að finna út hvað eigi að vera í matinn. Þá er til fólk sem skorar á sjálft sig með ótrúlegustu hluti – og auðveldar þannig hlutina.

Þetta hófst allt með því þegar bókavörður að nafni Ben Taylorson, átti erfitt með að ákveða hádegismatinn á daginn og deildi mynd af samloku á Twitter. Ben fékk gagnrýni frá vini sem þótti ekki mikið til samlokunnar koma, svo hann skoraði því á sig sjálfan að borða samloku á hverjum degi í mánuð, þá alltaf með mismunandi áleggjum. Og ekkert venjulegum áleggjum, því oftar en ekki sjáum við flögur á samlokunum ásamt öðrum hráefnum sem fær okkur til að gapa. Hann setti til að mynda T-bone steikarflögur á eina samlokuna ásamt tveimur ostsneiðum, súrsuðum gúrkum, tómatsósu og amerísku sinnepi – en þessa samloku kallaði hann „sigurvegara“, svo ánægður var hann með hana.

Ben mælir einnig með að nota piparrótarsósu, laukhringi og rjómaost til að lífga upp á flata loku. Eins má setja tortilla flögur, salsa, rifinn ost, jalapenjó og sýrðan rjóma – fyrir mexíkóska stemningu.

Girnilegt? Dæmi hver fyrir sig.
Girnilegt? Dæmi hver fyrir sig. Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Ótrúlegar samsetningar á hráefnum.
Ótrúlegar samsetningar á hráefnum. Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
Mbl.is/@BenTaylorson/Twitter
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert