Kjúklinga enchiladas að hætti Evu Laufeyjar

Ljósmynd/Eva Laufey

Hér er það sjálf Eva Laufey sem galdrar fram girnilegt kjúklinga enchiladas sem ætti að gera alla snarvitlausa.

Kjúklinga enchiladas að hætti Evu Laufeyjar

  • Ólífuolía
  • 1 rauðlaukur
  • 1⁄2 rautt chili
  • 2 rauðar paprikur
  • 2 hvítlauksrif
  • Salt og pipar
  • 2 kjúklingabringur
  • 1 dós niðursoðnir tómatar
  • 1 msk. tómatpúrra
  • 1 Mexíkóostur
  • 1 dl vatn
  • Kóríander
  • Tortilla kökur
  • Rifinn mozzarella frá Gott í matinn
  • Sýrður rjómi frá Gott í matinn
  • Salsa

Aðferð:

  1. Hitið olíu á pönnu, skerið niður grænmetið.
  2. Steikið laukinn í smá stund, bætið papriku og chili út á pönnuna.
  3. Pressið hvítlauksrif og bætið þeim einnig út á pönnuna.
  4. Skerið kjúklingabringurnar í bita og bætið út á pönnuna.
  5. Hellið tómötum og tómatmauki saman við.
  6. Skerið mexíkóostinn í litla bita eða rífið niður, setjið ostinn á pönnuna og hrærið.
  7. Bætið smávegis af vatni saman við og leyfið þessu að malla í nokkrar mínútur.
  8. Kryddið til með salti, pipar og smátt söxuðum kóríander.
  9. Setjið tortillakökur í eldfast mót, fyllið þær með kjúklingablöndunni og rúllið upp.
  10. Sáldrið rifnum mozzarella yfir.
  11. Bakið við 180°C í ca. 20-25 mínútur eða þar til osturinn er gullinbrúnn.
  12. Berið fram með sýrðum rjóma, salsa, ferskum kóríander (má sleppa) og gjarnan nachosflögum.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert