Geggjað kjúklingapasta með pestó og ostakubbi

Ljósmynd/Gígja S. Guðjóns

Það er engin önnur en Gígja S. Guðjónsdóttir sem á heiðurinn af þessari uppskrift sem ætti að falla í kramið hjá flestum enda hollur og góður, sáraeinfaldur og sjúklega lekker. 

„Þessi pastaréttur lætur mig fá vatn í munninn ef ég hugsa um hann. Rétturinn er rosalega ferskur og góður og hægt er að bera hann fram bæði kaldan og heitan,“ segir Gígja um uppskriftina sem er eiginlega algjört möst að prófa. 

Kjúklingapasta með pestó og ostakubbi

Fyrir fjóra

  • 3 stk. kjúklingabringur
  • 3 bollar pasta, 3-4 bollar
  • 1 búnt ferskur aspas
  • 3 msk. grænt pestó
  • 1⁄2 tsk. sítrónusafi
  • 1 stk. ostakubbur frá Gott í matinn
  • furuhnetur
  • fersk basilíka (má sleppa)
  • ólífuolía
  • salt og pipar

Aðferð:

  1. Kjúklingurinn er eldaður með salti og pipar. Ég grillaði kjúklinginn á mínútugrilli til að fá smá grillbragð. Einnig er hægt að elda hann í ofni við 200°C á blæstri í 25-30 mínútur eða þar til kjúklingurinn er tilbúinn.
  2. Aspasnum er velt upp úr olíu, salti og pipar og settur í ofninn á 200°C blástur í 15-20 mínútur eða þar til hann hefur fengið góðan lit.
  3. Á meðan er pastað sett í pott og eldað eftir leiðbeiningum pokans, þið getið notað það pasta sem ykkur finnst best.
  4. Furuhneturnar eru ristaðar í smá stund á pönnu við háan hita, best að fylgjast vel með þeim svo þær brenni ekki.
  5. Þegar pastað, kjúklingurinn og aspasinn er tilbúið er kjúklingurinn skorinn niður og þessu þrennu blandað saman í skál.
  6. Í skálina fer næst pestó og sítrónusafi og hrært vel saman og fært yfir í það form sem þið ætlið að bera réttinn fram í.
  7. Rétturinn er borinn fram með muldum ostakubbi, furuhnetum og ferskri basilíku.
Ljósmynd/Gígja S. Guðjóns
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert