Svona hleypir þú lífi í eldhússtörfin

Stundum kallar líflausa eldhúsið okkar á smá lit í umhverfið.
Stundum kallar líflausa eldhúsið okkar á smá lit í umhverfið. Mbl.is/Now Design

Ef þér er farið að leiðast eldhússtörfin, þá er spurning hvort að þú þurfir ekki að hressa upp á matargerðina með líflegri eldhúsvörum sem þessum.

Now Design var stofnað í San Francisco árið 1967 – en fyrirtækið sérhæfir sig meðal annars í að framleiða hágæða textíl í eldhúsið. Vörurnar frá Now Design eru litríkar og líflegar, og enn fremur eftirtektaverðar – því munstrin sem prýða vörurnar geta jafnvel verið dálítið kómískar.

Skálar, nestisbox, myndræn viskastykki, kartöflusekkir og jafnvel svuntur sem minna á svana-kjólinn sem ástsæla söngkonan okkar, Björk Guðmundsdóttir klæddist hér um árið - og fellur seint úr gildi. Allt þetta og miklu meira til frá Now Design - vörur  sem  færa svo sannarlega líf inn í daglegu eldhússtörfin. Því það er löngu vitað að lífið er mun skemmtilegra í lit. Vörurnar frá Now Design fást í Kokku.

Geggjaðir innkaupapokar!
Geggjaðir innkaupapokar! Mbl.is/Now Design
Now Design sérhæfir sig í að framleiða vörur með grafískum …
Now Design sérhæfir sig í að framleiða vörur með grafískum og oftar en ekki kómískum munstrum. Mbl.is/Now Design
Skemmtilegar svuntur sem þessar eru fáanlegar á bæði börn og …
Skemmtilegar svuntur sem þessar eru fáanlegar á bæði börn og fullorðna. Mbl.is/Now Design
Fallegar skálar á matarborðið.
Fallegar skálar á matarborðið. Mbl.is/Now Design
Ótal viskastykki finnast frá fyrirtækinu og hér er eitt með …
Ótal viskastykki finnast frá fyrirtækinu og hér er eitt með mælieiningum sem oft er gott að hafa við höndina. Mbl.is/Now Design
Kartöflusekkir, eins pokar undir lauka og engifer.
Kartöflusekkir, eins pokar undir lauka og engifer. Mbl.is/Now Design
Ílát og baukar með skrautlegum teikningum í öllum stærðum og …
Ílát og baukar með skrautlegum teikningum í öllum stærðum og gerðum finnast frá Now Design. Mbl.is/Now Design
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert