Svona bakar þú Napóleonskökur

Ljósmynd/Salt Eldhús

Sirrý í Salt eldhúsi kennir okkur hér hvernig á að gera hinar sígildu Napóleonskökur sem eru í uppáhaldi hjá svo mörgum.

„Napóleonskökur eru nú næstum hættar að sjást í bakaríunum. Þeir sem eldri eru muna margir eftir þessum girnilegu kökum sem fengust í öllum betri bakaríum í bænum fyrir um 20-30 árum. Ég fór í ótal sendiferðir í Bernhöftsbakarí fyrir ömmu mína þegar ég var lítil að ná í þessar guðdómlegu kökur og finnst þær ennþá dásamlega góðar. Hér er einföld uppskrift af þeim sem allir gera gert," segir Sirrí um uppskriftina og eflaust margir sem eiga svipaðar minningar.

Napóleonskökur

Uppskrift gerir 8 stór stykki

  • 4 plötur smjördeig
  • 1 pakki vanillubúðingur
  • 4 dl rjómi
  • 1 tsk. vanillusykur eða vanilludropar
  • 1 dl hindberjasulta
  • 1 ½ dl kakómalt
  • 8 kirsuber, ný eða sultuð

Aðferð:

Hitið ofninn í 220°C. Fletjið deigplöturnar út í ferhyrninga um 12×32 cm. Setjið bökunarpappír á 2 plötur og leggið deigið á plöturnar. Bakið deigið í um 10 mín eða þar til það er fallega gullið. Látið kökurnar kólna. Lagið sterka blöndu af vanillubúðinginn úr helmingnum af mjólkinni sem gefin er upp. Þeytið rjóman. Setjið svolítið af rjómanum út í vanillubúðinginn og smakkið til með vanillusykri eða dropum. Smyrjið sultu á 2 kökubotnana, setjið vanillubúðing ofan á og rjóma þar ofan á. Leggið kökubotn á rjómann, pressið aðeins á og jafnið rjómanum á hliðunum svo þær verði jafnar. Hrærið smávegis af vatni út í kakómaltið svo það verði passlega þykkt og smyrjið ofan á kökuna. Skerið hverja köku í 4 bita og setjið kirsuber á toppinn. Þessar kökur voru líka oft með bleikum glassúr ofan á.

Ljósmynd/Salt Eldhús
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert