Kjúklingaréttur með haug af parmesan

Ómótstæðilega góður parmesan kjúklingaréttur.
Ómótstæðilega góður parmesan kjúklingaréttur. Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir

Hér kynnum við kjúkling í parmesan raspi með ferskum mozzarella og tómatbasil sósu – eða „Chicken parmigiana”, eins og rétturinn er oftast kallaður. Þetta er hin fullkomna uppskrift þegar gera á vel við sig. En það er Hildur Rut á Trendnet sem býður okkur upp á þennan ljúffenga kjúklingarétt sem hefur gert réttinn að sínu eins og henni einni er lagið.

Kjúklingaréttur með haug af parmesan

  • 3 kjúklingabringur
  • Salt og pipar
  • 2-3 msk hveiti
  • 50 g smjör, skorið í teninga
  • 1 stórt egg
  • 2 dl pankó rasp (fæst t.d. í Hagkaup, Krónunni og Nettó)
  • 1 dl ferskur parmesan ostur, rifinn
  • Salt og pipar

Sósa

  • Tilbúin tómatssósa með basiliku (ég notaði frá Olifa)
  • 2 msk parmesan
  • ½-1 tsk hungang
  • 1-2 hvítlauksrif
  • Salt og pipar
  • Cayenne pipar
  • Ferskur mozzarella, 2 kúlur
  • Rigatoni
  • Fersk steinselja eða basilika

Aðferð:

  1. Skerið bringurnar í tvennt svo úr verði tvær sneiðar.
  2. Hrærið saman rifnum parmesan osti og raspi í skál.
  3. Veltið kjúklingnum uppúr hveiti, salti og pipar. Því næst veltið þeim upp úr eggi og svo að lokum parmesan og panko raspinum.
  4. Dreifið helmingnum af smjörinu í botninn á eldföstu móti. Leggið bringurnar ofan á og að lokum dreifið restinni af smjörinu yfir. Bakið í ofni í 20 mín við 200°C.
  5. Á meðan kjúklingurinn bakast þá er gott að gera sósuna. Blandið saman tilbúnu sósunni, parmesan osti, hunangi, pressuðu hvítlauksrifi, cayenne pipar, salti og pipar. Endilega smakkið ykkur til.
  6. Skerið mozzarella í sneiðar og dreifið honum yfir kjúklinginn og hellið svo sósunni yfir. Bakið í 10 mínútur í viðbót eða þar til osturinn er bráðnaður og kjúklingurinn er tilbúinn.
  7. Á meðan kjúklingurinn er að bakast í ofninum þá er gott að sjóða rigatoni eftir leiðbeiningum á pakkningu.
  8. Toppið svo í lokin með ferskri basiliku eða steinselju og berið fram með rigatoni, restinni af sósunni og meiri parmesan osti.
Mbl.is/Hildur Rut Ingimarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert