Haldið ykkur fast – Ostakökutaco er það allra svalasta

Ljósmynd/Thelma Þorbergs

Þrátt fyrir að ritstjórn matarvefjarins sé almennt í ágætu jafnvægi þá rekumst við stundum á uppskriftir sem sprengja allt upp – bókstaflega.

Hér er Thelma Þorbergs með uppskrift að því sem hún kallar ostakökutaco og er mögulega það svalasta sem við höfum séð. Hún notar tortillakökur og útkoman er hreint sjúklega lekker.

Ostakökutaco með bláberjasírópi

Skemmtileg útfærsla á ostakökum þar sem tortillakökur eru notaðar til að búa til sætar og stökkar tacoskeljar undir ostakökufyllingu með sítrónubragði. Ostakökutacoið er svo toppað með ljúffengu bláberjasírópi.

Best er að byrja á sírópinu þar sem það tekur smá stund að verða tilbúið.

Tortillur

  • 5 stk. stórar tortillakökur
  • olía til steikingar
  • 100 g sykur
  • 2 tsk. kanill

Ostakaka

  • 250 g rjómaostur til matargerðar frá Gott í matinn
  • 21⁄2 dl rjómi frá Gott í matinn
  • 100 g flórsykur
  • 1⁄2 tsk. rifinn sítrónubörkur
  • 1 msk. sítrónusafi

Bláberjasíróp

  • 250 g frosin bláber, eða fersk
  • 1 dl vatn
  • 60 g sykur
  • 1⁄2 stk. sítrónusafi
  • 1 msk. maizenamjöl

Skeljar fyrir ostaköku

  1. Skerið út tortillurnar t.d. með kökuskera eða notið glas á hvolfi og myndið litla hringi úr tortillunum. Hérna er hægt að ráða þeirri stærð sem verður á tacoskelinni. Með því að nota lítið drykkjarglas fáið þið um 40 stk.
  2. Hitið olíu í potti, um 2-3 cm frá botni, og hitið yfir meðalháum hita. Passið ykkur að hafa hitann ekki of háan því þá steikist skelin allt of hratt og verður of stökk.
  3. Setjið sykur og kanil saman í skál og blandið saman.
  4. Notið töng til að klemma saman tortillukökurnar og dýfið þeim þannig ofan í olíuna, steikið hvora hlið fyrir sig í u.þ.b. 10 sekúndur eða þar til skelin er orðin gullinbrún. Passið að steikja þær ekki of lengi. Með því að klemma tortillakökurnar efst á brúnunum myndast tacoskel.
  5. Dýfið skeljunum strax í kanilsykurinn og passið að setja sykur á báðar hliðarnar.
  6. Gott er að nota t.d. bollakökuform og snúa þeim á hvolf til að raða tacoskeljunum á og þannig halda þær sér vel eða eins og þér finnst best.

Sítrónuostakaka

  1. Þeytið rjómann þar til hann er orðinn stífur og stendur, passið ykkur þó að þeyta hann ekki of mikið. Setjið rjómann í aðra skál og geymið til hliðar.
  2. Þeytið rjómaost og flórsykur saman þar til blandan er orðin mjúk og slétt.
  3. Bætið sítrónuberki saman við ásamt safa úr sítrónunni. Hrærið þar til allt hefur náð að blandast vel saman.
  4. Blandið rjómanum saman við rjómaostsblönduna og hrærið saman með sleif þar til allt hefur blandast vel saman.
  5. Setjið lítinn sprautustút í sprautupoka og sprautið ostablöndunni í hverja skel fyrir sig.
  6. Setjið bláberjasíróp yfir hverja skel fyrir sig.
  7. Geymist í kæli þar til skeljarnar eru bornar fram.

Bláberjasíróp

  1. Setjið bláber, vatn og sykur saman í pott á meðalháum hita þar til suða er komin upp.
  2. Blandið sítrónusafa og maizenamjöli saman við og hrærið vel.
  3. Látið sjóða yfir lágum hita í rúmar 10-15 mínútur eða þar til sírópið er farið að þykkna.
  4. Ef ykkur finnst það of þykkt má bæta smá vatni saman við.
  5. Kælið sírópið áður en þið setjið það ofan á ostakökutacoið.

Höfundur: Thelma Þorbergsdóttir

- - -

Fylgstu með Mat­ar­vefn­um á In­sta­gram. Enda­laus æv­in­týri, hug­mynd­ir, skemmti­leg­ir leik­ir og allt það heit­asta heita ...

Svo megið þið endi­lega tagga okk­ur á In­sta­gram þegar þið eruð að elda eitt­hvað spenn­andi @mat­ur.a.mbl

Ljósmynd/Thelma Þorbergs
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert