Einfalt kjúklinganachos á fimmtán mínútum

Ljósmynd/Old El Paso

Hver elskar ekki gott kjúklinganachos? Hér erum við með uppskrift sem þykir ein sú allra besta og ætti að gleðja mannskapinn.

Einfalt kjúklinganachos á fimmtán mínútum

  • 200 g Old El Paso Original Nachips
  • 1 msk. Old El Paso Taco Seasoning Mix
  • 100 g Old El Paso Sliced Green Jalapeños
  • olía til að smyrja bökunarplötu
  • 225 g cheddarostur, rifinn
  • 300 g eldaður kjúklingur, niðurskorinn
  • 175 g frosnar eða niðursoðnar maísbaunir
  • 1 jalapeño-chili, skorinn
Aðferð:
  1. Hitið ofninn í 200ºC (blástursofn, 180ºC ), gasofn á 6. Leggið bökunarpappír á bökunarplötu og smyrjið með olíu. Dreifið helmingnum af Nachips-flögunum jafnt á bökunarplötuna.
  2. Blandið saman osti og tacokryddi í litla skál. Sáldrið hemingnum af ostablöndunni yfir flögurnar. Setjið helminginn af kjúklingi, maísbaunum og jalapeñobitum ofan á flögurnar. Endurtakið allt einu sinni.
  3. Hitið í 10 mínútur eða þar til osturinn er bráðnaður.

Ábendingar sérfræðinga:

  • Frábært með kirusberjatómötum, kóríander, guacamole eða sýrðum rjóma.
  • Notið venjulegar tortillur ef þið fáið ekki Nachips.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert