Splunkunýtt frá After Eight

Bragðgóða súkkulaðiði After Eight, er nú fáanlegt í eggjaformi.
Bragðgóða súkkulaðiði After Eight, er nú fáanlegt í eggjaformi. mbl.is/Nestle

Eitt ástsælasta súkkulaði allra tíma er án efa After Eight, sem virðist nú vera fáanlegt í eggjaformi ef marka má nýjustu fréttir.

Þrátt fyrir að nafnið á súkkulaðinu gefi til kynna að það eigi að vera skemmtun eftir kvöldmat er enginn að fara banna okkur að njóta góðgætisins fyrir þann tíma. Þeir sem eru aðdáendur blöndu súkkulaðis og myntu geta sannarlega glaðst yfir þessum fréttum og það rétt fyrir páska. Eggin hafa þó ekki ratað hingað til lands enn sem komið er, en hægt er að nálgast súkkulaðiði HÉR, og kostar pokinn um 1.000 krónur íslenskar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert