Kjúklingarétturinn sem fær bragðlaukana til að dansa

Frábær kjúklingaréttur með fersku salati frá Snorra hjá Matur og …
Frábær kjúklingaréttur með fersku salati frá Snorra hjá Matur og myndir. Mbl.is/Snorri Guðmundsson

„Æðislegur og einfaldur kjúklingaréttur með sætum kartöflum, sveppasósu og stökku og fersku eplasalati sem passar svakalega vel með. Þessi er reglulegur gestur á matseðli fjölskyldunnar,“ segir Snorri Guðmunds um þennan frábæra kjúklingarétt.

Rétturinn sem fær bragðlaukana til að dansa (fyrir 2)

  • Kjúklingabringur, 2 stk
  • ferskt rósmarín, 3 g
  • sætar kartöflur, 400 g
  • sveppir, 60 g
  • sveppakraftur, ½ teningur
  • rautt epli, 1 stk / T.d. Pink lady
  • klettasalat, 30 g
  • rauðlaukur lítill, 1 stk
  • rjómi, 150 ml
  • hvítvín, 50 ml
  • hunang, 1 tsk
  • límónusafi, 1 tsk

Aðferð:

  1. Forhitið ofn í 180°C með blæstri.
  2. Skerið sæta kartöflu í bita og veltið upp úr olíu og salti. Dreifið yfir ofnplötu með bökunarpappír og bakið í neðstu grind í ofni í 30-35 mín. Hrærið í þegar tíminn er sirka hálfnaður.
  3. Tínið rósmarínlaufin af stilknum og saxið fínt. Setjið kjúklingabringur í skál með söxuðu rósmaríni, olíu og salti eftir smekk. Blandið vel saman.
  4. Hitið olíu á pönnu við meðalháan hita. Steikið kjúklingabringurnar í 2,5 mín á hvorri hlið og færið svo í eldfast mót. Bakið í miðjum ofni í um 15 mín. eða þar til kjúklingurinn er hvítur í gegn og fulleldaður.
  5. Lækkið hitann á pönnunni í miðlungshita. Sneiðið sveppi. Bætið sveppum út á pönnuna, og steikið þar til þeir fara að mýkjast. Bætið hvítvíni út á pönnuna og látið sjóða niður um helming. Bætið rjóma og sveppakrafti út á pönnuna og látið malla rólega í nokkrar mín. þar til sósan þykkist. Smakkið til með meiri sveppakrafti og salti ef þarf.
  6. Pískið 1 msk af ólífuolíu saman við hunang og límónusafa.
  7. Sneiðið epli og skerið rauðlauk eftir smekk í þunna strimla. Setjið klettasalat, epli og rauðlauk í skál og hellið salatdressingunni saman við rétt áður en maturinn er borinn fram. Blandið vel saman.
Mbl.is/Snorri Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert