Kartöflugratínið sem þykir það allra besta

Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson

Sannir matgæðingar vita að þegar Læknirinn í eldhúsinu setur saman uppskrift að kartöflugratíni þá er það ekkert meðalmennskumoð.

Hér er hann með uppskrift sem er svo bragðgóð að það telst leitun að öðru eins.

Kartöflugratínið sem þykir það allra besta

  • 1,5 kg kartöflur
  • 50 g smjör
  • 750 ml rjómi
  • 2 stk. skalottulaukar (2-3 stk.)
  • 3 stk. hvítlauksrif
  • 2 msk. hvítlauksolía (2-3 msk.)
  • nokkrar greinar af fersku timíani
  • salt og pipar
  • góður harður ostur, t.d. Óðals-Tindur

Aðferð:

  1. Auðvitað þarf að byrja á því að flysja kartöflurnar.
  2. Svo þarf að smyrja formið með mjúku smjöri. Einnig er gott að kreista tvö eða þrjú hvítlauksrif og smyrja eldfasta mótið með þeim að innan.
  3. Skerið kartöflurnar með mandólíni þannig að sneiðarnar verði allar jafnþunnar, en auðvitað má skera þær niður með hníf sé mandólín ekki til taks. Svo er bara að raða þeim upp lag fyrir lag og pensla af og til með hvítlauksolíu (meira er eiginlega alltaf betra).
  4. Af og til er líka ljómandi gott að setja með smáræði af afar þunnt skornum skalottulauk og timíani og mikilvægt að salta og pipra á milli kartöflulaga.
  5. Svo er það rjómi og nóg af honum, en rjómanum er hellt yfir kartöflurnar þegar búið að er að raða þeim öllum í mótið.
  6. Næst er að rífa handfylli af ljúffengum osti yfir kartöflurnar, eins og Óðals-Tindi, og dreifa honum vel.
  7. Hitið ofninn í 180 gráður og bakið gratínið, fyrst undir álpappír til að brenna ekki ostinn, í 45 mínútur. Svo er álpappírinn tekinn af og osturinn látinn brúnast í korter í viðbót.
  8. Svo er ekkert annað en að bera þessa dásemd fram.

Höfundur: Ragnar Freyr Ingvarsson

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert