Stórbrotin grísarif að asískum hætti

Ljósmynd/Salt eldhús

Við dettum oft í dramatíkina hér á Matarvefnum en stundum ráðum við okkur hreinlega ekki fyrir kæti. Eins og þegar við rekumst á uppskriftir eins og þessa hér frá Sirrý í Salt-eldhúsi.

Við erum að tala um grísarif með asísku bragði.

Það er í alvörunni fátt betra.

Stórbrotin grísarif að asískum hætti

Namm! puttamatur. Margir sælkerar elska að naga bein en hér er réttur þar sem bein eru elduð sérstaklega til að naga. Kryddið er dásamlegt og sósan breytir þessum grísarifjum í upplifun fyrir sælkera. 5-spice-kryddblöndu er hægt að fá í Asíubúðunum en það er líka auðvelt að gera sjálfur. Sichuan-pipar er frá Kína. Þennan rétt verða allir að prófa!

Fyrir 3-4

  • 2 kg grísarif
  • 3 msk. púðursykur
  • 1 msk. sjávarsalt
  • 1 msk. 5-spice

Hitið ofninn í 170°C (160°C á blástur). Setjið álpappír í ofnskúffu, gott að nota pappír sem er sterkur og hylur skúffuna alveg. Hreinsið himnuna sem er beinamegin á rifjunum. Best er að nota lítinn hníf og plokka himnuna upp á mjórri endanum. Þegar þið eru kominn með tak á himnunni er hægt að rífa hana af í einu lagi. Þetta er smá nostur en skiptir máli því himnan er leiðinleg undir tönn, eftir tvö rif eruð þið komin upp á lag með þetta. Skerið hvert rif í tvo hluta, þá er auðveldara að koma þeim í skúffuna. Blandið púðursykri, salti og kryddi saman og nuddið kjötið með því á báðum hliðum. Raðið kjötinu í einu lagi í ofnskúffuna og hellið 3½ dl af vatni í skúffuna. Hyljið kjötið með álpappír og bakið þetta í 1½ klukkustund. Lagið sósuna og leggið til hliðar. 

Takið kjötið úr ofninum og stillið ofninn á grill. Penslið kjötið með sósunni og grillið þar til það fer að krauma, snúið bitunum við og penslið hinum megin og grillið þá hlið. Berið fram með hrísgrjónum og góðu salati, e.t.v. salati sem er með „Katsu-kjúklingi“ hér annars staðar á blogginu. 

Sósa:

  • 1 dl sojasósa
  • 1 dl hoisin-sósa
  • 3 msk. hunang
  • 1 msk. rifið engifer
  • 4 hvítlauksgeirar, saxaðir
  • 1 tsk. 5-spice

Setjið allt í pott og sjóðið saman í 2-3 mín.

5-spice-kryddblanda:

  • 1 msk. fennelfræ
  • 1 msk. negull
  • 1 msk. stjörnuanís
  • 1 msk. sichuan-pipar
  • 1 msk. kanilduft

Setjið allt nema kanelduft í mortel, krydd- eða kaffikvörn og malið fínt. Bætið kanel út í og malið saman þar til vel samlagað. Geymið í krukku á þurrum stað. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert