Sósa sem sögð er brjálæðislega góð

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Fátt vekur jafn mikla athygli hér á Matarvefnum og góð sósa. Hér er á ferðinni sósa sem hafa má með nánast öllum mat og hægt er að kaupa hana tilbúna, sem er alltaf ákveðinn plús. Heyrst hefur meira að segja af fólki sem er með hana í veskinu sínu en hér eru engin nöfn nefnd.

Það er Berglind Hreiðars á Gotteri.is sem á þessa uppskrift en við erum að tala um tortilla-pítsu sem tekur nákvæmlega tvær mínútur að gera.

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

„Hér er á ferðinni tortilla-pítsa sem ég gerði einu sinni reglulega en var búin að steingleyma þar til hún poppaði upp í kollinn á mér á dögunum. Ég fékk hana fyrst hjá Sonju vinkonu í Seattle og held hún sé úr fyrstu matreiðslubókinni hennar Yesmine, án þess þó að ég sé viss,“ segir Berglind og bætir við að uppskriftin sé súpereinföld, fljótleg og hrikalega góð!

„Þessi sósa er alveg brjálæðislega góð. Við elskum að setja hana yfir allar pítsur og hún passaði einstaklega vel með þessari hér! Hún er líka góð yfir salat, vefjur, samlokur og ýmislegt fleira. Ég keypti tilbúinn kjúkling sem ég skar niður svo ef þið kaupið heilan slíkan má vel gera fleiri pítsur úr honum. Myndi halda þið næðuð alveg átta pítsum ef þið nýttuð allt kjöt.“

Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir

Fljótlegar kjúklingapítsur

Uppskrift dugar í 4 tortilla-pítsur (myndi áætla 2 á mann)

  • 4 tortillakökur
  • 2 eldaðar kjúklingabringur
  • 8 msk. sweet chili-sósa (2 msk. á hverja köku)
  • 1 rauð paprika
  • 1 rauðlaukur
  • rifinn ostur
  • kóríander
  • Hellmann's Jalapeno Garlic Street Food-sósa

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 200°C.
  2. Smyrjið tortillaköku með sweet chili-sósu.
  3. Skerið kjúkling og raðið honum jafnt á kökurnar.
  4. Skerið papriku í mjóa strimla og rauðlauk í sneiðar og skiptið niður á kökurnar.
  5. Rífið ost yfir allt og bakið í um 8 mínútur.
  6. Stráið kóríander yfir í lokin og sprautið Street Food-sósu yfir allt eftir smekk.
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
Ljósmynd/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert