Lambalæri eins og amma eldaði það með ljúffengu meðlæti

Ljósmynd/Linda Ben

Amma hennar Lindu Ben kunni augljóslega að galdra fram gómsætt lambalæri ef marka má þessa uppskrift.

„Lambalærið er eldað í 5 klst við vægan hita sem gerir það að verkum að það verður alveg ótrúlega mjúkt og nánast dettur af beinunum, amma eldaði lambalærin alltaf svona í sveitinni í gamla daga og er þessi eldunaraðferð í algjöru uppáhaldi hjá mér,“ segir Linda um uppskriftina.

„Gott meðlæti skiptir alltaf miklu máli en hér gerði ég bakaðar gulrætur, balsamikbakað rósakál og hvítlaukssteikta sveppi sem ég bar fram saman á salatbeði með lambakjötinu. Fallegt og bragðgott.“

Ljósmynd/Linda Ben

Lambalæri eins og amma eldaði það með ljúffengu meðlæti

  • Bláberjamarinerað lambalæri

  • Bakaðar gulrætur

  • Balsamikbakað rósakál

  • Hvítlaukssveppir

  • Ferskt salat

  • Bláber

  • Ferkt timjan

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 150°C.

  2. Setjið lærið í ofnheldan pott og lokið, bakið í ofninum í u.þ.b. 5 klst.

Bakaðar gulrætur

  • 500 g gulrætur

  • 1 msk. púðursykur

  • 1 msk. soja sósa

  • 1 msk. ólífuolía

  • Salt

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 200°C.

  2. Hreinsið gulræturnar og skerið endana af, skerið þær þvert í helminga. Setjið í eldfast mót.

  3. Blandið saman púðursykri, sojasósu og ólífuolíu, hellið yfir gulræturnar og blandið saman, saltið og bakið í 20-30 mín. þar til mjúkar.

Balsamikbakað rósakál

  • 500 g rósakál
  • 1 msk. balsamikedik
  • 1 msk. púðursykur
  • 1 msk. ólífuolía
  • Salt og pipar

Aðferð:

  1. Skerið endann af rósakálinu og skerið þvert í helminga, hreinsið ljót lauf af ef þau eru til staðar.
  2. Blandið saman balsamikediki, púðursykri, ólífuolíu og hellið yfir rósakálið, kryddið með salti og pipar. Bakið í ofni í 20-30 mín.

Hvítlaukssteiktir sveppir

  • 250 g sveppir
  • 2 hvítlauksrif
  • 2 msk. smjör

Aðferð:

  1. Bræðið smjör á pönnu og rífið hvítlauksrifin út á.
  2. Bætið sveppunum út á og steikið sveppina á miðlungshita þar til þeir eru orðnir mjúkir í gegn.

Berið fram lambalærið með því að setja salat á stóran platta út við brúnirnar. Setjið meðlætið ofan á salatið. Skerið lambalærið og setjið á miðjan diskinn. Skreytið með bláberjum og fersku timjan.

Ljósmynd/Linda Ben
Ljósmynd/Linda Ben
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert