Döðlukakan sem er fræg á Vestfjörðum

Ljósmynd/Albert Eiríksson

Meistari Albert Eiríks heldur áfram að taka hús á matgæðingum um land allt og fá hjá þeim uppskriftir sem þykja þær allra bestu. Uppskriftir sem búið er að prófa og laga til eftir þörfum og verða alltaf betri og betri.

Það er Sigríður Júlía á Ytri-Hjarðardal í Önundarfirði sem á þessa uppskrift en Albert var þar staddur í mikilli veislu.


„Þessi kaka er alltaf mjög vinsæl hér á heimilinu og ég geri hana mjög gjarnan hvort sem er í kaffiboði eða sem eftirrétt. Í mörg ár hef ég boðið upp á hana á Þorláksmessu fyrir gesti og gangandi,“ segir Sigríður Júlía um kökuna sem er eiginlega nauðsynlegt að baka.

Döðlukaka með heitri karamellusósu

Kakan:

  • 235 g döðlur
  • 1 tsk. matarsódi
  • 120 g mjúkt smjör
  • 5 msk. sykur
  • 2 egg
  • 3 dl hveiti
  • ½ tsk. salt
  • ½ tsk. vanilludropar
  • 1 og 1/3 tsk. lyftiduft

Aðferð:

  1. Setjið döðlur í pott og látið vatn fljóta yfir.
  2. Látið suðuna koma upp, slökkvið á hitanum og látið döðlumaukið bíða í pottinum í þrjár mínútur.
  3. Bætið matarsódanum saman við.
  4. Þeytið smjör og sykur vel saman og bætið eggjunum í, einu í senn.
  5. Blandið síðan hveiti, salti og vanilludropum saman við.
  6. Bætið lyftiduftinu út í, ásamt ¼ bolla af döðlumaukinu, og hrærið varlega í.
  7. Blandið að lokum afganginum af döðlumaukinu út í.
  8. Smyrjið u.þ.b. 8 cm hátt lausbotna form, sem er 24 cm í þvermál, vel með smjöri og setjið deigið í það.
  9. Hitið ofninn í 180°C og bakið í 30-40 mínútur eða þar til miðjan er bökuð.
  10. Hvolfið kökunni á tertudisk og berið hana fram volga eða kalda með sósunni og léttþeyttum rjóma. Einnig má skreyta kökuna með döðlum, jarðarberjum eða valhnetum.

Karamellusósan:

  • 120 g smjör
  • 115 g púðursykur
  • ½ tsk vanilludropar
  • ¼ bolli rjómi

Setjið allt hráefnið saman í pott og látið suðuna koma upp.

Ljósmynd/Albert Eiríksson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert