Geggjaður kjúklingaréttur frá Berglindi Guðmunds

Ljósmynd/Berglind Guðmunds

Flest erum við fullkomlega meðvituð um það hvað Berglind Guðmundsdóttir hjá GRGS.is er mikill snillingur í eldhúsinu. Því getum við ekki beðið eftir að prófa þessa snilld sem verður í matinn í kvöld.

Kjúklingaréttur með grænmeti og balsamrjómasósu

  • 4 kjúklingabringur, t.d. frá Rose Poultry
  • 1/2 brokkólí
  • 3-4 hvítlauksrif
  • 1 rauð paprika
  • 1/2 púrrulaukur
  • 100 g mozzarellaostur, rifinn
  • 3 dl rjómi
  • 1 msk. maizenamjöl
  • 1 krukka tómatpúrra
  • 2 tsk. sykur
  • 1 dl sýrður rjómi
  • 1 tsk. paprikukrydd (fyrir kjúklinginn)
  • 1 tsk. salt (fyrir kjúklinginn)
  • 1 tsk. cayennepipar
  • 2 msk. balsamedik
  • 8 kartöflur

Aðferð:

  1. Skerið kartöflunar í bita og látið í ofnfast mót. Hellið olíu yfir, saltið og piprið. Látið í 200°C heitan ofn í 20-30 mínútur eða þar til þær eru farnar að mýkjast.
  2. Skerið kjúklinginn í litla bita og kryddið með paprikukryddi og salti. Brúnið á pönnu. Látið kjúklinginn yfir kartöflunar.
  3. Skerið grænmetið niður og steikið á pönnu. Bætið tómatpúrru og sykri saman við.
  4. Hitið rjóma, maizenamjöl, sýrðan rjóma, cayennepipar og balsamedik í potti við vægan hita. Þegar allt hefur blandast saman hellið yfir grænmetið og blandið vel saman við vægan hita. Smakkið til með salti. Hellið yfir kjúklinginn og stráið mozzarellaosti yfir allt.
  5. Látið í 200°C heitan ofn í 30 mínútur. Gott er að hafa álpappír yfir í 15 mínútur svo osturinn brenni ekki.
Ljósmynd/Berglind Guðmunds
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert