Súpan sem sögð er göldrótt

Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir

Stundum verður maður að fá sér góða súpu. Það einhvern veginn gerir allt betra og súpur hafa þann einstaka eiginleika að ylja manni frá toppi til táar. Þessi snilldarsúpa kemur úr smiðju Helenu Gunnarsdóttur og hana ætti enginn að láta framhjá sér fara.

Rjómalöguð tómatsúpa með kjúklingi

Sérlega gómsæt og bragðmikil tómatsúpa með kjúklingi og rjómaosti sem tekur enga stund að elda. Rjómaostur með papriku og chili gefur einstaklega gott bragð í súpuna og rífur aðeins í, sem er upplagt á köldum haustkvöldum.

  • 3 stk. kjúklingabringur, skornar í litla bita (3-4)
  • 1 stk. laukur, smátt saxaður
  • 2 stk. hvítlauksrif, smátt söxuð
  • 1 stk. rauð paprika, skorin í litla teninga
  • 2 msk. smjör
  • 2 msk. tilbúin tacokryddblanda að eigin vali
  • 2 msk. tómatpaste
  • 2 dósir maukaðir tómatar
  • 800 ml kjúklingasoð (vatn og 1-2 teningar eða kraftur)
  • 250 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 200 g rjómaostur með grillaðri papriku og chili
  • salt og pipar

Toppur:

  • saxaðir tómatar
  • basil
  • vorlaukur
  • rifinn mozzarella frá Gott í matinn

Aðferð:

  1. Bræðið smjör í stórum potti.
  2. Steikið kjúklinginn og kryddið með tacokryddi þar til aðeins brúnaður og setjið þá í skál til hliðar.
  3. Steikið því næst lauk, hvítlauk og papriku þar til mýkist aðeins. Kryddið einnig með tacokryddi.
  4. Bætið tómatpaste út í og leyfið að steikjast aðeins með.
  5. Hellið tómötunum yfir ásamt kjúklingasoði, rjóma og rjómaosti.
  6. Pískið saman og hitið hægt og rólega upp.
  7. Þegar suðan er að koma upp setjið kjúklinginn þá út í og sjóðið allt rólega saman í fimm mínútur.
  8. Smakkið súpuna til með salti, pipar og ef til vill meira tacokryddi.
  9. Setjið í skálar og toppið með ferskum tómötum, basil, rifnum osti og vorlauk.
Ljósmynd/Helena Gunnarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert