Á Íslandi hefur ekki verið sama hefð fyrir því að nota sinnep í matargerð og tíðkast mikið í hinum norrænu ríkjunum. Nú gæti verið útlit fyrir breytingar í þeim efnum, en með tilkomu Sælkera sinnepsins frá Svövu. H Guðmundsdóttur hefur aðgengi að alvörusinnepi aukist til muna en sinnepið hefur vakið athygli meðal matgæðinga og þykir framúrskarandi.
Svava bjó áður í Svíþjóð þar sem sérstakt sterkt sinnep með sætukeim er afar vinsælt. Eftir að hún flutti aftur heim til Íslands byrjaði hún að prófa sig áfram með að búa til sína eigin útgáfu af sinnepinu, þar sem það var ekki fáanlegt í verslunum landsins.
„Upprunalega fór ég að framleiða sinnepið sem gljáa á sænsku jólaskinkuna, en við höfum tekið upp ýmislegt sænskt í okkar matargerð,“ segir Svava. Fyrst um sinn fengu vinir og ættingjar hennar að njóta góðs af framleiðslunni en nú er það loksins fáanlegt í verslunum Hagkaups.
Svava segir viðtökurnar við sinnepinu hafa verið góðar og nú eru væntingar um að auka útbreiðslu þess. „Fáar sinnepstegundir hafa fengist hér og eru Íslendingar ekki vanir að nota þetta nýja sinnep. Því hefur þurft að kynna notkun þess sérstaklega. Það eru helst þeir sem hafa ferðast mikið eða búið á Norðurlöndum, í Þýskalandi og Hollandi sem hafa kynnst fjölbreyttari tegundum og þekkja sinnep sambærileg sinnepi Svövu.“
Inniheldur íslenskan bjór
Sinnepsfræ frá Svíþjóð eru notuð í framleiðsluna, en annars reynir Svava að hafa sem mest af hráefnunum íslensk. Helst eru þau fengin frá heimafólki í héraði, og það sýnir sig vel í vöruúrvalinu. Tegundirnar eru sex: Sterkt sætt, sem er grunnsinnepið, Aðalbláber og blóðberg, Kúmen og ákavíti, Flóki viskí, Íslenskur rabarbari og Lakkrís. Í öllum tegundum sinnepsins er einnig íslenskur bjór að norðan, Kaldi lager.
Sinnepið er hægt að nota í ýmiss konar matargerð. „Mínar ráðleggingar eru að fylgja innsæinu. Við notum sinnepið í alls konar matargerð, svo sem marineringu á kjöt, í salatsósur, með grillmat, í pottrétti, á allt reykt og grafið eitt og sér eða í graflaxsósu. Það er um að gera að láta hugmyndaflugið ráða. Svo get ég ekki sleppt því að minnast á samloku sem kallast Goslokan eða Veiðimaðurinn sem er alltaf nesti fjölskyldunnar. Samlokan samanstendur af tveimur brauðsneiðum með sinnepi, osti, skinku og salatblaði. Það er aldrei spurt um það hvernig samlokur eigi að útbúa, heldur hve margar,“ segir Svava H. Guðmundsdóttir að lokum.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl