Hér höfum við alveg dásamlega gamaldags skúffuköku með ekta súkkulaðikremi úr smiðju Lindu Ben sem segir kökuna einstaklega bragðgóða, létta og ljúfa.
„Kakan er afskaplega bragðgóð, létt og ljúf sem passar svo vel með kreminu sem við erum flest sammála um að sé aðalmálið þegar kemur að skúffukökum.
Síríus-suðusúkkulaði er aðaluppistaða kremsins en það er brætt með smjöri og rjóma sem er svo hrært saman við flórsykur. Sú blanda er kæld niður og svo hrærð upp köld með smá rjóma, þá breytist kremið í ljóst og fallegt krem.
Þessi kaka er mjög stór og hentar í ofnskúffu sem er 36 x 43 x 4 cm stór eða sambærilega,“ segir Linda um kökuna.
Skúffukaka með ekta súkkulaðikremi
- 350 ml olía
- 6 egg
- 500 g karamellu grísk jógúrt
- 650 g sykur
- 75 g kakóduft frá Nóa Siríus
- 750 g hveiti
- 3 tsk. matarsódi
- 2 tsk. lyftiduft
- 1-2 dl volgt vatn
Krem
- 400 g suðusúkkulaði frá Nóa Síríus
- 200 g smjör
- 1-2 dl rjómi
- 500 g flórsykur
Aðferð:
- Kveikið á ofninum og stillið á 175°C.
- Setjið olíu og egg saman í hrærivélarskál og hrærið saman.
- Bætið karamellujógúrtinni saman við og hrærið.
- Blandið saman hveiti, sykri, kakó, matarsóda og lyftidufti í aðra skál. Bætið því svo út í eggjablönduna rólega ásamt vatni, ath. setjið fyrst 1 dl af vatni og bætið svo allt að 1 dl í viðbót ef þarf.
- Setjið smjörpappír í ofnskúffu þannig að pappírinn nær vel upp á hliðar skúffunar líka (ég setti tvær stórar arkir ofan í skúffuna og lét þær liggja að stærstum hluta ofan á hvor annarri en þannig að þær huldu allt yfirborð skúffunnar samt) og hellið svo deiginu í skúffuna. Bakið í u.þ.b. 35 mín. eða þar til kakan er bökuð í gegn.
- Kælið kökuna og útbúið kremið á meðan.
- Bræðið suðusúkkulaðið og smjörið saman ásamt rjóma. Setjið svo blönduna í hrærivél og hrærið flórsykur saman við. Setjið blönduna inn í ísskáp og kælið hana alveg niður.
- Setjið þá blönduna aftur í hrærivél og þeytið þar til hún verður létt og ljós, ef ykkur finnst kremið svolítið þurrt er gott að bæta við örlitlum rjóma saman við.
- Smyrjið kreminu yfir kalda kökuna.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl