Stofnaði fiskvinnslu fyrir þrítugt

Hrefna Valdemarsdóttir.
Hrefna Valdemarsdóttir.

Það hafði alltaf verið draumur Hrefnu Valdemarsdóttur að stofna fiskvinnslu enda hafði hún unnið í fiski nánast allt sitt líf. Þegar atvinnuástandið bauð ekki upp á marga möguleika ákvað hún að leggja allt í sölurnar til að geta búið áfram á Flateyri og látið draum sinn rætast.

„Það var því ekkert annað í stöðunni en að stofna eigin fyrirtæki. Í nóvember 2019 létum við vaða og draumurinn rættist,“ segir Hrefna um tilurð þess að Fiskvinnsla Hrefnu er stofnuð.

„Fljótlega eftir að við hófum rekstur bauðst okkur að kaupa vörumerkið Ísfirðing sem fyrrverandi eigandi hafði þá byggt upp og komið á markað. Við vorum afar hrifin af vörunni og sáum að kaupin myndu auðvelda okkur verulega að koma okkur af stað í framleiðslu og dreifingu. Ísfirðingur varð okkar og við framleiðum allar okkar vörur undir því vörumerki,“ segir Hrefna en Ísfirðingur hefur vakið athygli fyrir afar frambærilegar og vandaðar vörur.

Hrefna segir þetta hafa verið mikið ævintýri og auðvitað hafi verið hæðir og lægðir. „Að hefja rekstur í miðjum heimsfaraldri er kannski heldur dýpri lægð en við hefðum kosið en við höfum sett undir okkur höfuðið og erum staðráðin í að komast upp úr henni. Sem við munum gera.

Vill breyta því hvernig fólk borðar reyktan lax

Áhugi fólks á vörunni hefur frá byrjun verið mikill enda er varan okkar einstaklega góð. Við vinnum eingöngu með fyrsta flokks hráefni úr næsta nágrenni okkar hér á Flateyri. Laxinn og regnbogasilunginn vökvareykjum við og erum við þau einu á landinu sem notum þessa framleiðsluaðferð. Vökvareykingin felur í sér að trjákurl er sett í ofn og eimað, reykurinn þéttist og fellur í vökva. Vegna framleiðsluaðferðarinnar verður varan hollari og bragðið mildara. Það hefur farið afar vel í neytendur.“

Hrefna segir áhugavert að skoða hvernig fólk notar reyktan og grafinn laxfisk. Flestir nýti hann eingöngu sem álegg en því vill hún breyta. „Reyktur lax og regnbogasilungur er nefnilega herramannsmatur sem nota má sem uppistöðu í ýmsar nýstárlegar uppskriftir sem elda má við hversdagsleg og hátíðleg tækifæri. Á vefsvæðinu okkar, isfirdingur.is, höfum við nú þegar komið á framfæri tíu uppskriftum að afar gómsætum réttum og hyggjumst bæta enn frekar í og benda neytendum á enn fleiri leiðir til að nota okkar frábæru vöru í daglega eldamennsku sem og tilraunaeldhúsið.“

Hráefni úr heimabyggð

Hrefna segir að hráefnið sé allt frá fyrirtækjum í næsta nágrenni, sem heldur kolefnisspori í öflun aðfanga til framleiðslu í algjöru lágmarki. Hún sé afar stolt af því að notast við hráefni úr heimabyggð. Þessa dagana sé verið að þróa spennandi nýjungar auk þess sem markmiðið sé að auka sölu á þeim vörum sem fyrirtækið framleiðir nú þegar. „Við höfum unnið að því að koma með ýmsar nýjungar á markaðinn sem við erum bjartsýn á að muni njóta mikilla vinsælda. Reyktur laxfiskur er frábær uppspretta prótína, fjölmargra vítamína og omega-3-fitusýra. Með aukinni áherslu á heilnæmt og hreint fæði má búast við að áhugi neytenda á neyslu á eldislaxi og silungi muni halda áfram að aukast og að mikil tækifæri séu í framleiðslu og markaðssetningu á mismunandi afurðum úr þessum tegundum. Við erum þó og viljum vera smáframleiðandi sem starfar í heimabyggð, nálægt uppruna hráefnisins sem við vinnum með. Þannig tryggjum við áfram þau gæði sem við erum stolt af og stuðlum á sama tíma að atvinnuuppbyggingu í okkar dásamlega þorpi.“

Leggja allt í sölurnar

Fyrirtækið og framleiðslan skapa í dag atvinnu fyrir Hrefnu sem framkvæmdastjóra og tvo starfsmenn til viðbótar auk þess sem tveir eru í hlutastarfi við sölu og dreifingu á höfuðborgarsvæðinu. „Unnusti minn og foreldrar eru meðeigendur í fyrirtækinu og vinnum við öll saman við áframhaldandi þróun þess enda höfum við öll mikla reynslu í öllu sem tengist fiskverkun og -vinnslu. Við höfum öll lagt mikið á okkur til að láta þennan draum rætast og leggjum allt í sölurnar til að halda honum lifandi.“

Vestfirsku valkyrjurnar

Blaðamaður getur ekki varist því að spyrja hvort um sé að ræða vestfirskt fyrirbæti að skíra fyrirtæki í höfuðið á konum. Besta dæmið um þetta sjálfsagt Mjólkurvinnslan Arna.

„Já, þú segir nokkuð,“ segir Hrefna. „Vestfirskar konur eru auðvitað engir aukvisar og hafa margar verið áberandi í gegnum tíðina. Svo mjög að um það hafa verið skrifuð merkileg fræðirit. Ef ég man rétt er nafnið á Örnu komið frá dóttur stofnanda fyrirtækisins sem heitir Arna. Okkur þótti nafnið Fiskvinnslan Hrefna eiga hreint ágætlega við og setja einhvern persónulegan blæ á fyrirtækið, eitthvað sem okkur er annt um að halda í. Ég kem stolt fram fyrir hönd fyrirtækisins. Við stundum heiðarleg viðskipti í sátt við náttúruna og samfélagið hér enda er það forsenda þess að fyrirtækið fái blómstrað á Flateyri,“ segir Hrefna en þeir sem þekkja Flateyri vita að það er einstakur staður og tekur Hrefna heilshugar undir það. „Hér er yndislegt að búa. Þorpið er einstaklega staðsett eyri í ægifögrum Önundarfirðinum. Hér er vítt til fjalla og náttúran alltumlykjandi og á nokkrum mínútum erum við komin út í guðsgræna náttúruna til að njóta. Flateyri er rólegur staður, hér er einstök kyrrð. Hér er lítil umferð og tíminn einhvern veginn lengur að líða en annars staðar. Hér er frábært að ala upp börn, í þorpi þar sem allir þekkja alla og vel er haldið utan um samfélagið.“

Ísfirðing finnur fólk í verslunum Hagkaupa, Iceland og Nettó, í Krambúðum og Kjörbúðum um allt land. Vörur fást einnig í Melabúðinni, í Fjarðarkaupum, í sælkerabúðinni Gott og blessað og í netverslun Heimkaupa auk smærri verslana hér á svæðinu og víðar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert