Þegar Læknirinn í eldhúsinu dregur fram hrærivélina bíðum við hin spennt eftir útkomunni enda verður hann seint þekktur fyrir smjör- og gleðisnauðan mat.
„Ég geri ekki oft eftirrétti eða kökur og þess vegna gæti þessi uppskrift komið einhverjum á óvart, vonandi skemmtilega. En ég komst í smá eftirréttagír þegar ég var að skrifa fjórðu matreiðslubókina – því auðvitað þarf að vera smá kafli um eftirrétti. Þessi kaka varð til skömmu eftir að ég lauk skrifum á bókinni. Hugmyndin var sú að gera hana í tilefni af Valborgarmessunni sem Svíar halda hátíðlega á hverju vori – en náði ekki að klára hana í tæka tíð. Bæti fyrir það með því að birta hana í dag.
Þegar við bjuggum í Svíþjóð var jarðarberið í mínum huga tákn um sænskt sumar. Og nú er um að gera að tengja það við íslenska sumarið – enda skín sólin og íslensku berin eru komin í búðir.
Það er að koma sumar – ekta jarðarberjaterta að drukkna í jarðarberjum
Þessi kaka er gerð í nokkrum stigum. Fyrst svampbotninn, svo fyllingin, svo bragðbættur rjómi, svo skreyta með jarðarberjum. En þetta er í raun ofureinfalt."
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson
Jarðarberjadraumur læknisins
Svampbotn
- 4 egg
- 250 g sykur
- 125 g hveiti
- 125 g kartöflumjöl
- 3 tsk. lyftiduft
Aðferð:
- Byrjið á því að brjóta egg í skál og þeytið þau vandlega.
- Hellið sykrinum saman við og og þeytið þar til létt og ljóst.
- Sigtið saman hveiti, kartöflumjöl og lyftiduft og bætið varlega saman við.
- Smyrjið smelluform vel og setjið bökunarpappír í botninn. Bakið við 175°C í um 20 mínútur eða þar til prjónn kemur hreinn út.
- Látið svampbotninn kólna alveg áður en þið losið mótið.
Fylling
- 2 eggjarauður
- 100 g flórsykur
- 90 g hvítt súkkulaði
- 250 ml þeyttur rjómi
Aðferð:
- Þeytið saman saman eggjarauður og flórsykur þar til þykkt og ljósgult. Bræðið súkkulaðið, leyfið því að kólna lítillega og blandið því svo saman við eggja- og flórsykurblönduna. Blandið síðan þeyttum rjóma varlega saman við.
- Skerið svampbotninn í tvo álíka þykka hluta og smyrjið mjög rausnarlega með hvítsúkkulaði-fyllingunni. Geymið afganginn af fyllingunni – ég notaði afganginn í skreytingar.
- Þeytið svo 500 ml af rjóma með tveimur til þremur matskeiðum af vanillusykri og smyrjið utan á kökuna.
- Ég var með 600 grömm af jarðarberjum. Át sjálfur hálft box þannig að líklega hafa tæplega 500 grömm af berjum farið á kökuna.
- Þroskuð jarðarber eru ekki bara sæt á bragðið, þau eru líka algert augnakonfekt. Skar öll berin í þunnar sneiðar.
- Svo er bara að byrja að raða jarðarberjunum. Það er nóg af fallegum fyrirmyndum að finna á netinu.
- Ég notaði afganginn af hvít-súkkulaðirjómanum og setti í poka og sprautaði dropum yfir jarðarberin.
- Dustaði kökuna með dálitlu af flórsykri. Reyndi að skapa einhvers konar mynstur. Mér fannst þetta heppnast nokkuð vel!
- Og svo var kakan líka sérlega gómsæt.
- - -
Fylgstu með Matarvefnum á Instagram. Endalaus ævintýri, hugmyndir, skemmtilegir leikir og allt það heitasta heita ...
Svo megið þið endilega tagga okkur á Instagram þegar þið eruð að elda eitthvað spennandi @matur.a.mbl
Íslensk jarðarber urðu að sjálfsögðu fyrir valinu.
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson
Villi, sonur Ragnars, var einstaklega ánægður með kökuna að sögn föðurs síns.
Ljósmynd/Ragnar Freyr Ingvarsson