Ómótstæðilegur rækjubátur að hætti Snorra

Sjúklega girnilegur rækjubætur.
Sjúklega girnilegur rækjubætur. Mbl.is/Snorri Guðmundsson

Góðir landsmenn, haldið ykkur fast því hér er á ferðinni New England-style rækjubátur sem hefur ekki sést á borðum í lengri tíma. Heimalagað rækjusalat úr risarækjum, graslauk, dilli, japönsku majó, sellerí og vorlauk – umvafið dúnmjúku ristuðu kartöflubrauði. Þessi veisla er í boði Snorra Guðmunds hjá Matur og myndir og verður hreint út sagt að smakkast.

Ómótstæðilegur rækjubátur að hætti Snorra (fyrir tvo)

  • Risarækjur, 350 g (frosin þyngd)
  • Kartöflu pylsubrauð, 2 stk
  • Japanskt majónes, 45 g
  • Sýrður rjómi 10%, 15 g
  • Sellerí, 1 stilkur
  • Vorlaukur, 30 g
  • Dill ferskt, 7 g
  • Graslaukur ferskur, 5 g
  • Sítróna, 1 stk
  • Hvítlaukur, 1 rif
  • Smjör, 30 g

Aðferð:

  1. Setjið vatn í pott og náið upp suðu. Bætið rækjum út í pottinn og sjóðið í 2-2,5 mín eða þar til rækjurnar eru rétt svo eldaðar í gegn (varist að sjóða rækjurnar of lengi því þá verða þær of stífar).
  2. Hellið vatninu frá rækjunum og látið kalt vatn renna á þær til að stoppa eldunina.
  3. Bræðið smjörið og pressið 1 hvítlauksrif saman við.
  4. Saxið dill og graslauk smátt, skerið sellerí í litla bita og sneiðið vorlauk í þunnar sneiðar.
  5. Skerið rækjur í bita og hrærið saman við majónes, sýrðan rjóma, dill, graslauk, sellerí og vorlauk. Kreistið smá sítrónusafa saman við og smakkið til með salti og meiri sítrónusafa ef þarf.
  6. Opnið brauðin og smyrjið að innan með hvítlaukssmjöri. Raðið á ofnplötu og ristið í ofninum í nokkrar mín þar til brauðið er farið að taka fallegan lit.
  7. Fyllið brauðin með rækjusalati og berið fram með sætkartöflufrönskum
Mbl.is/Snorri Guðmundsson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert