Opna nýjan djúsa- og samlokustað um land allt

mbl.is/Kristinn Magnússon

Einn vinsælasti pítsustaður landsins, Blackbox, hefur ákveðið að færa út kvíarnar og hyggur nú á opnun nýs veitingastaðar sem munu sérhæfa sig í djúsum og samlokum. Staðurinn hefur hlotið hið viðeigandi nafn Djúsí og verður staðsett í Borgartúninu við hliðina á Blackbox.

Það eru þó ekki einu tíðindin því Djúsí mun svo opna staði á fjölda N1 stöðva og geta því ferðalangar um land allt gætt sér á hollum og bragðgóðum (og djúsí) mat um land allt.

„Blackbox Pizzeria í Borgartúni er þekkt á markaðnum fyrir gæði, frumleika og gott bragð í einstökum súrdeigs sælkera pizzum sem staðurinn býður upp á. Vörumerkið er í stöðugri þróun og hefur til dæmis vörulínan í Krónunni stækkað jafnt og þétt. Frá upphafi hefur okkur langað að fara með Blackbox lengra, stækka fjölskylduna og Djúsí er hluti af því sælkeraverkefni. Það er augljóslega vöntun á djús– og samlokum í Borgartúninu og Blackbox langaði að svara því kalli og stækka conceptið enn frekar með þessari fersku og safaríku viðbót. Nú er nefnilega komið af því að heimfæra Blackbox erfðaefnið út í samlokur og djúsa með þessum nýja stað sem er Djúsí by Blackbox,“ segir Jón Gunnar Geirdal, um stækkunina.

„Djúsí kemur inn á þennan markað með háleit markmið um að gera sérlega ljúffengar samlokur og geggjaða djúsa. Ég stofnaði Lemon fyrir átta árum síðan og  þekki djúsa-og samlokugeirann því afar vel og sú þekking og reynsla í bland við botnlausa sælkerakunnáttu félaga míns, Viggó Vigfússonar, hefur því nýst okkur sérstaklega vel því undanfarnar vikur höfum við verið að þróa Djúsí: glænýjan og öskrandi ferskan bastarð getinn af nákvæmlega sömu hugmyndafræði og DNA og Blackbox en samt með skýra aðgreiningu og einkenni eins og fólk mun upplifa,“ bætir Jón Gunnar við.  

Að sögn forsvarsmanna N1 er mikil tilhlökkun vegna samstarfsins sem unnið hefur verið í nánu samstarfi fyrirtækjanna tveggja.

Okkur hjá N1 hlakkar mikið til samstarfsins við BlackBox og eftir að hafa tekið þátt í þessari þróun frá upphafi með reglulegu smakki erum við komin með frábæra vörulínu. Samlokur og djúsar passa vel inn í okkar stefnu að auka fjölbreytileika í hollari og ferskari veitingum inni á N1 og því ætlum við að setja fullan þunga í þessa þróun inni á okkar staðsetningum. Þessi vörulína á það svo sannarlega skilið að fara víða og ætlum við að opna staði á næstu misserum víða um land svo flestir geti fengið að njóta. Fyrstu tveir staðirnir opna í sumar og verða þeir á landsbyggðinni,“ segir Jón Viðar Stefánsson, rekstrarstjóri þjónustustöðva N1.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert