Þetta hefur þú ábyggilega aldrei smakkað

Ostaköku-borgari, girnilegt eða algjörlega út í hött?
Ostaköku-borgari, girnilegt eða algjörlega út í hött? Mbl.is/Instagram_PLEESECAKES

Þetta er sko alls engin falsfrétt, því ostaköku-borgari þykir víst algjört dúndur og er að fá heimsathygli – enda engin venjuleg samsetning á mat.

Það eru kökusnillingarnir hjá PLEESECAKES sem eiga heiðurinn að þessu „undri“. Hér er samsetning af hafrakökum, stökkum og steiktum laukbotni, bragðmikilli rjómaostafyllingu með hamborgarakjöti, súrum gúrkum og haug af osti. Kökugjörningurinn er svo toppaður með karamelluseruðu lauk-chutney og hvorki meira né minna en átta heimagerðum smáborgurum. Augljóslega kaka sem matgæðingar verða að smakka – ef þeir þora! Fyrir þá sem vilja sjá meira af kökum og kræsingum má finna PLEESECAKES á Instagram sem eru með rétt um 224 þúsund fylgjendur – svo vinsælir eru þeir.

Mbl.is/Instagram_PLEESECAKES
Mbl.is/Instagram_PLEESECAKES
Mbl.is/Instagram_PLEESECAKES
Mbl.is/Instagram_PLEESECAKES
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert